Leiktöf á Frederik og ÍA jafnaði
Miðvörðurinn Baldvin Þór Berndsen var hetja ÍA þegar hann jafnaði metin gegn Val á síðustu stundu, í Bestu deildinni. Það gerði hann með skalla eftir hornspyrnu sem kom í kjölfar þess að Frederik Schram, markvörður Vals, var of lengi að taka markspyrnu.