Glamúrinn var fljótur að fölna

„Glamúrinn við útlandið var fljótur að fölna og heimþráin magnaðist upp með hverju árinu, segir Manúela Ósk Harðardóttir. Manúela prýðir forsíðu Lífsins, nýs vikublaðs sem fylgir Fréttablaðinu á föstudögum. Manúela flutti nýlega heim eftir nokkurra ára dvöl erlendis. Hana hlakkar til að takast á við ný verkefni hér á landi og lítur björtum augum á framtíðina eftir erfiða tíma í einkalífinu og mikla útreið í fjölmiðlum í kjölfar skilnaðar. Lífið hitti Manúelu í vikunni og tók viðtal við hana sem birtist í blaðinu á morgun ásamt fjölda skemmtilegra frétta og umfjallana. Umsjónarmenn Lífsins í Fréttablaðinu og á Vísi eru Ellý Ármannsdóttir og Kolbrún Pálína Helgadóttir.

8687
00:19

Vinsælt í flokknum Lífið