First Try Fail Mondays - Sigfinnur Böðvarsson

First Try Fail Mondays eru hjólabrettaþættir úr smiðju plötusnúðsins Adda Intro. Addi tekur hús á fremstu hjólabrettamönnum landsins og leggur fyrir þá þrautir sem þeir verða að klára. Að þessu sinni er það Sigfinnur Böðvarsson sem spreytir sig og stendur hann sig vægast vel, neglir hvert trikkið á fætur öðru. Sindri Sigþórsson, Felix E. Heimisson, Pétur Jarl Gunnarsson, Davíð Hólm og Siggi Rósant koma einnig fram í þættinum.

Þáttur Sigfinns er hluti af annarri þáttaröð First Try Fail Mondays en sú fyrsta, sem telur um 40 þætti, er nú komin út á DVD.

8877
07:29

Vinsælt í flokknum First Try Fail Mondays