Golfskóli Birgis Leifs: Takturinn er mikilvægur

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur og Íslandsmeistari í golfi, fer hér yfir hve mikilvægt það er að vera með góðan takt í golfsveiflunni. Birgir sýnir æfingar sem flestir kylfingar geta nýtt sér en þær eru úr þáttunum Golfskóli Birgis Leifs sem sýndir eru á Stöð 2 sport. Í þáttunum tók Birgir Leifur m.a. fyrir val á golfbúnaði, skipulag við golfleik, mataræði, hugarþjálfun og einbeitingu. Tökur á þáttunum fóru fram á heims­klassa æfingasvæði í Flórída.

6557
03:41

Vinsælt í flokknum Golf