Kvöldfréttir Stöðvar 2: Beitt ofbeldi af fósturbróður sínum

Magga Dís, sem fór sem skiptinemi til Perú síðasta vetur, segir farir sínar ekki sléttar af samskiptum sínum og móður hennar við skiptinemasamtökin AFS. Móðirin hafi greitt rúmlega eina og hálfa milljón til þess ganga úr skugga um að dóttir sín væri í öruggum höndum í Perú, en þegar reyndi á, hafi samtökin algjörlega brugðist og raunar gert illt verra. Magga Dís lýsir tíma sínum í Perú, ofbeldinu sem hún var beitt af fósturbróður sínum og skeytingarleysi AFS skiptinemasamtakanna í máli hennar, sem náði hápunkti þegar forseti AFS í Perú hringdi í fósturmóður Möggu Dísar og bað hana að reka Möggu Dís út af heimilinu.

3150
00:11

Vinsælt í flokknum Fréttir