Ísland í dag - Barnið þitt er á lífi

Þegar Ranka Studic var 25 ára gömul fæddi hún sitt fyrsta barn á sjúkrahúsi í Serbíu. Barnið fékk hún aldrei að sjá og var sagt að það hefði látist við fæðingu. Sautján árum síðar fær Ranka símtal á heimili sitt í Kópavogi þar sem henni er sagt að sonur hennar sé á lífi, hann heiti Ratko og hafi verið seldur auðugri fjölskyldu í Sviss við fæðingu. „Við viljum bara vita hvar hann er, hvernig hann hefur það og hvernig lífi hann hefur lifað,“ segir Ranka, en í nýútkominni bók, Barnið þitt er á lífi, ritar Elín Hirst þessa mögnuðu sögu. Áhrifarík saga hjónanna Rönku og Zdravko Studic í Íslandi í dag í kvöld.

4166
00:54

Vinsælt í flokknum Ísland í dag