Boltinn: Þorbjörn Jensson: "Spurði í hálfleik hvort þeir vildu spila áfram með hinu liðinu í seinni hálfleik."
Þorbjörn Jensson, nýráðinn aðstoðarþjálfari karlaliðs Vals í handbolta, var í léttu spjalli í Boltanum í morgun. Þorbjörn hefur ekki komið að þjálfun í 12 ár en segir handboltann þó í grunninn ekki hafa breyst mikið.