Vonar að málið fái góða umræðu
Umræður um boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið héldu áfram á Alþingi í dag eftir að málið var rætt langt fram á kvöld í gær. Að lokinni fyrstu umræðu fer málið til meðferðar hjá utanríkismálanefnd og segir forsætisráðherra að nefndin geti gefið sér margar vikur í umsagnaferlið án þess að fyrirhugaðri dagsetningu atkvæðagreiðslunnar - þann 29. ágúst sé stefnt í hættu, en þrír mánuðir þurfa að líða frá samþykkt málsins á þingi og að atkvæðagreiðslu.