CS Nostalgían - diG mætir MurK í Aztec

CS Nostalgían snýr aftur eftir langt frí. Að þessu sinni sýnir Vísir og Andri Freyr Ríkarðsson viðureign milli diG og MurK frá árinu 2003. Það þarf vart að kynna MurK, sigursælasta lið upphafsára CS á Íslandi og höfum við sýnt nokkra leiki með þeim áður. Þetta er hinsvegar í fyrsta sinn sem við sýnum leik með liðinu diG (dummies inGame). Það var stofnað af fyrrverandi liðsmönnum Love í lok ársins 2002 og átti góðu gengi að fagna. Keppt var í efstu deild netmótsins Thursinn í kortinu Aztec, en mótið var einskonar Vodafone-deild síns tíma. Aztec þótti einkar skemmtilegt kort og ættu krybbuhljóðin að vekja upp nostalgíu hjá eflaust mörgum. Liðsmenn diG: LuPlebb, PlayBoy, Resolver, Rocco$, Rodriguez. Liðsmenn MurK: Asgeir (Hostile), Gunnar (Gambler), ingolfur (blibb), johann (Zombie), Johannes (knifah). Athugið að síðasta lota fyrri hálfleiks vantar.

3898
32:11

Vinsælt í flokknum Rafíþróttir