Skæð hitabylgja geisar í Evrópu

Tvö börn, tveggja og fjögurra ára, fundust látin í bifreið í suðausturhluta Frakklands í dag. Saksóknari í Carpentras segir að dánarorsök liggi ekki fyrir á þessari stundu en að talið sé líklegast að hitinn hafi orðið þeim að bana. Hitastig á umræddu svæði mældist 39 gráður í hádeginu. Um helgina létust þrír eldri borgarar nærri Bordeaux en rekja mátti dauðsföllin til ofsahitans. Stjórnvöld í Frakklandi vara almenning við hitanum og biðla til hans að forðast eins og frekast er unnt líkamlega áreynslu og að halda sig frá sólinni.

138
02:04

Vinsælt í flokknum Fréttir