Áhöfnin á Fiskabúrinu
Áhöfnin þurfti að vera fljót að fylla dallinn í dag, enda þurfti skipstjórinn Þórður Gunnarsson að kveðja fyrr en vanalega. Áhöfnin náði aftur á móti að skransa í gegnum nokkra fasta liði og gerðu það vel. Óvæntir atburðir gerðust í lok þáttar þegar tvö fljúgandi skófludekk rúlluðu niður Suðurlandsbrautina eins og ekkert væri sjálfsagðara og fengu hlustendur lýsingu í beinni á þeim skemmtilega atburði.