Kom Víkingum á bragðið

Víkingur hafði betur gegn Fylki í Bestu deild karla í dag. Leikurinn kláraðist nú rétt fyrir fréttir en það var Birnir Snær Ingason sem kom Víkingum á bragðið á 10. mínútu með laglegu skoti. Aðeins fimm mínútum síðar átti Logi Tómasson fyrirgjöf eftir stutta hornspyrnu sem fann höfuð Svíans Oliver Ekroth sem stangaði boltann í slá og inn og skoraði annan leikinn í röð.

123
02:47

Vinsælt í flokknum Fótbolti