Ofbeldi gegn lögreglu áhyggjuefni
Dómsmálaráðherra hefur áhyggjur af auknu ofbeldi í garð lögreglumanna og boðar aðgerðir til að bregðast við. Nokkur mál hafa komið upp að undanförnu þar sem lögreglumönnum og jafnvel fjölskyldum þeirra er hótað, þeir beittir ofbeldi, eða skemmdir unnar á eigum þeirra í eða við heimili.