Hæstiréttur Bandaríkjanna felldi tolla Trumps úr gildi
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur fellt úr gildi flesta þá tolla sem Donald Trump forseti landsins hafði lagt á innfluttar vörur síðasta árið. Niðurstaðan er mikið áfall fyrir forsetann sem hefur lagt tolla á fjölmörg ríki um heim allan í þeim tilgangi að styðja við uppbyggingu efnahags heimafyrir. Til að mynda lagði forsetinn fimmtán prósenta innflutningstoll á vörur frá Íslandi.