Allir ætla að ferðast
Stór hluti Íslendinga ætlar að ferðast innanlands í sumar og verja ekki nema sjötíuþúsund krónum í sumarfríið. Verkefnastjóri hjá Ferðamálastofu segir greinilegt að Íslendingar ætli ekki að láta veirufaraldurinn stoppa sig og vonar að þeir komi til með að eyða aðeins meiri fjármunum í ferðalögin en áður.