Tveir drengjanna sem voru í bíl sem lenti í Hafnarfjarðarhöfn í gærkvöld eru þungt haldnir
Tveir drengjanna sem voru í bílnum sem hafnaði í sjónum út af Óseyrarbryggju í Hafnarfirði í gærkvöld eru þungt haldnir. Boðað hefur verið til bænastundar í Hafnarfirði síðar í dag vegna slyssins og segir prestur mikilvægt að fólk haldi ró sinni og foreldrar haldi utan um unglingana sína.