Þungir dómar í Hvalfjarðargangamálinu
Fimm karlmenn og ein kona voru sakfelld í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir amfetamínframleiðslu í sumarbústað og fyrir að valda mengunarhættu með því að sturta skaðlegum efnum frá dópframleiðslunni í náttúruna við bústaðinn.