„Ætlum sýna þeim hversu góðir í fótbolta við erum“
„Við erum búnir að eiga flotta æfingaviku í Þýskalandi og núna æft einu sinni hér í Lúxemborg. Á þessum tíma höfum við náð að fara yfir fullt af hlutum, góðum hlutum sem við gerðum í síðasta glugga og svo hlutir sem við þurfum að gera á móti Lúxemborg,“ segir Jóhann Berg Guðmundsson fyrirliði Íslands fyrir leikinn gegn Lúxemborg sem fer fram ytra klukkan 18:45 í kvöld.