Íslendingar dæmdir í fangelsi í Ástralíu
Tveir íslenskir karlmenn, Helgi Heiðar Steinarsson og Brynjar Guðmundsson, hafa verið dæmdir í fangelsi í Melbourne í Ástralíu fyrir stórfellt fíkniefnasmygl. Dómari í málinu sagði mennina einungis lítið hjól í stærra neti glæpasamtaka. Dómsmálaráðuneytinu hefur ekki borist beiðni um að þeir fái að afplána hér á landi.