Stjórnvöld verði að tala fyrir hvalveiðum
Árni Sverrisson, formaður Félags skipstjórnarmanna segir reynslu sjó- og skipstjórnarmanna skýra um áhrif gríðarlegrar fjölgunar hvala á fiskistofna við Íslandsstrendur. Bregðast verði við en umfram allt hvetur hann til miklu umfangsmeiri rannsókna á vistkerfi hafsins og samspili tegunda sem þar eru.