Arnar um Gylfa Þór: „Ótrúlegt eftir svona langan tíma
Það ráku upp stór augu þegar fréttist af því að Gylfi Þór Sigurðsson væri mættur á æfingu með Bestu deildar liði Vals. Þjálfari liðsins, Arnar Grétarsson, segist ekki vera farinn að láta sig dreyma um að sjá Gylfa í treyju Vals í sumar, hann hafi þó engu gleymt inn á knattspyrnuvellinum.