Heimili á Selfossi fyrir börn með fjölþættan vanda
Bergrisinn, sem sér um þjónustu fyrir fatlað fólk á Suðurlandi hefur tekið í notkun heimili á Selfossi fyrir börn með fjölþættan vanda og langvarandi stuðningsþarfir. Börnin fara þá af heimili sínu yfir á nýja heimilið en foreldrar þeirra eru þó enn þá forsjáraðilar yfir börnum sínum og geta komið í heimsóknir hvenær sem er. Nýja heimilið mun skapa nokkur ný störf.