Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Svona færðu nýja Facebook Ein stærsta breyting á útliti samskiptasíðunnar Facebook var opinberuð í dag. Nýjungin kallast Timeline og er hugmyndin komin frá Mark Zuckerberg, stjórnanda og stjórnarformanns Facebook. 15.12.2011 20:30
Segir Breta eiga að lækka á undan Frakklandi Það ætti að lækka lánshæfi Bretlands á undan Frakklandi, segir Christian Noyer, bankastjóri seðlabankans í Frakklandi. Hann segir að ákvörðun Davids Camerons, forsætisráðherra Bretlands, um að standa fyrir utan samkomulag Evrópusambandsþjóða um aðgerðir til þess að tryggja efnahagslegan stöðugleika á Evrópusambandssvæðinu, þýða að lánshæfi Bretlands ætti að lækka á undan Frakklandi. 15.12.2011 20:00
Google birtir vinsælustu leitarefnin Tölvufyrirtækið Google hefur birt árlegan lista sinn yfir vinsælustu leitarefni Breta. Leitarefnin eru af ýmsum toga og gefa vísbendingar um tíðaranda Bretlands. 15.12.2011 13:05
Þekktur danskur lögmaður ákærður fyrir peningaþvætti Hinn rúmlega sextugi danski lögmaður Jeffery Galmond hefur verið ákærður í Þýskalandi fyrir peningaþvætti. Upphæðin sem um ræðir samsvarar 17 milljörðum króna en þetta fé vaskaði Galmond fyrir Leonid Reiman fyrrum símamálaráðherra Rússlands í gegnum ýmis skúffufyrirtæki víða um heiminn. 15.12.2011 09:30
Spáir hörðum kreppuvetri á evrusvæðinu Endurskoðendafyrirtækið Ernst & Young spáir því að harður kreppuvetur sé framundan á evrusvæðinu. 15.12.2011 07:00
Menntaskólanemi hagnast á smjörkreppunni í Noregi Átján ára menntaskólanemi í Noregi hefur hagnast vel á smjörkreppunni sem ríkir í Noregi. Honum hefur tekist að selja smör á netinu fyrir sem samsvarar 5.000 norskum krónum eða um 100.000 krónum á kílóið. 15.12.2011 07:00
Rauðar tölur á öllum mörkuðum og gengi evrunnar fellur Rauðar tölur voru á öllum mörkuðum í Bandaríkjunum í gærkvöldi og á Asíumörkuðum í nótt. 15.12.2011 07:00
Heimsmarkaðsverð á olíu snarlækkar Heimsmarkaðsverð á olíu hefur snarlækkað á síðustu dögum eða um allt að 5%. Þannig hefur Brent olían lækkað úr tæpum 110 dollurum á tunnuna og niður í tæpa 105 dollara og bandaríska léttolían hefur lækkað úr 100 dollurum á tunnuna og niður í 95 dollara. 15.12.2011 07:00
Amazon svarar gagnrýni Uppfærsla á stýrikerfi Kindle Fire, einum helsta keppinauti spjaldtölvunnar iPad, er væntanleg. Talsmaður vefverslunarinnar Amazon staðfesti þetta í dag en spjaldtölvan hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að fara frjálslega með persónuupplýsingar notenda sinna. 14.12.2011 11:58
Skartgripir Taylor seldust á yfir 14 milljarða Met var slegið á uppboði á munum, aðallega skartgripum, úr dánarbúi leikkonunnar Elisabeth Taylor hjá Christie´s í New York í gærkvöldi. Skartgripirnir voru slegnir á 116 milljónir dollara eða rúmlega 14 milljarða króna. 14.12.2011 09:00
Rauðar tölur á öllum mörkuðum Niðursveifla var á Asíumörkuðum í nótt en að vísu minniháttar. Þannig lækkaði Nikkei vísitalan í Tókýó um 0,4% og Hang Seng vísitalan í Hong Kong um 0,5%. 14.12.2011 08:48
Óskarsverðlaunastytta Orson Welles sett á uppboð Óskarsverðlaunastytta sem leikstjórinn Orson Welles fékk fyrir mynd sína Citizen Kane árið 1942 verður sett á uppboð í Los Angeles síðar í þessum mánuði. Wells fékk þessa styttu fyrir besta kvikmyndahandritið þetta ár. 14.12.2011 07:48
Danskur sjávarútvegur réttir verulega úr kútnum Danskur sjávarútvegur hefur rétt verulega úr kútnum á þessu ári. Þannig hafa tekjur sjávarútvegsins árin 2010 og 2011 aukist um 50% miðað við árin á undan og eru orðnar um 3 milljarðar danskra króna eða yfir 60 milljarðar króna það sem af er þessu ári. 14.12.2011 07:45
Microsoft gefur nýjasta snjallsíma sinn Samkvæmt Twitter-síðu Microsoft ætlar fyrirtækið að gefa nokkrum óánægðum notendum Android-stýrikerfisins nýjan Windows Phone snjalllsíma. 13.12.2011 22:30
Minni aukning í smásölu en búist var við Smásala í Bandaríkjunum jókst ekki eins mikið og búist hafi verið við samkvæmt tölum sem birtar voru í morgun. Smásalan jókst um 0,2% en greinendur höfðu spá 0,5% aukningu, að því er breska ríkisútvarpið BBC greinir frá. 13.12.2011 15:51
Modern Warfare 3 er vinsælli en Avatar Tölvuleikurinn Call of Duty: Modern Warfare 3 er vinsælasta afþreyingarvara allra tíma. Framleiðandi tölvuleiksins, Activision, tilkynnti í daga að sölutekjur Modern Warfare 3 hefðu náð einum milljarði dollara á 16 dögum. Kvikmyndin Avatar náði því takmarki á 17 dögum. 13.12.2011 09:38
Air Atlanta tekur skýþjónustu Microsoft í notkun Air Atlanta hefur tekið í notkun Office 365 skýþjónustu Microsoft, í samvinnu við Nýherja. Um er að ræða fyrstu innleiðingu Nýherja á Microsoft Office 365 fyrir viðskiptavin. 13.12.2011 08:52
Uygur: Enginn stendur með millistéttinni Cenk Uygur þáttastjórnandi er oft harðoður í þætti sínum The Young Turks, þar sem ýmis þjóðfélagsmál í Bandaríkjunum eru til umræðu. Hann segir engan standa með millistéttinni þegar kemur að skattamálum. 13.12.2011 08:46
Stálheppinn auðmaður tekur slaginn gegn Putin Rússneski auðmannurinn Mikhail Prokhorov, sem ætlar að bjóða sig fram gegn Vladimir Putin í forsetakosningum í Rússlandi á næsta ári, á að baki brokkgenga fortíð eins og fleiri rússneskir auðmenn. 13.12.2011 07:58
Afspyrnuléleg jólavertíð í Hollywood Jólavertíðin í Hollywood hefur ekki byrjað jafnilla undanfarin þrjú ár en aðsókn að jólamyndunum í ár í Bandaríkjunum þykir afspyrnuléleg. 13.12.2011 07:52
Commerzbank rambar á barmi gjaldþrots Þýski stórbankinn Commerzbank rambar á barmi gjaldþrots og stendur nú í samingum við þýsk stjórnvöld um frekari ríkisstyrk til að halda starfsemi sinni á floti. 13.12.2011 07:37
Danir gætu átt 6.000 milljarða í olíusjóði Danska ríkið gæti átt 300 milljarða danskra króna eða yfir 6.000 milljarða króna í þjóðarsjóði ef stjórmvöld í Danmörku hefðu farið sömu leið og Norðmenn árið 1996 og stofnað sérstakan olíusjóð um hagnaðinn af olíuvinnslunni í Norðursjó. 13.12.2011 07:29
Moody´s setti markaði í rauðar tölur Ákvörðun matsfyrirtækisins Moody´s um að setja öll ríki Evrópusambandsins á athugunarlista með neikvæðum horfum leiddi til þess að markaðir í Bandaríkjunum enduðu í rauðum tölum í gærkvöldi. 13.12.2011 07:21
Fréttaskýring: Sköpuðu bankaáhlaup með Twitter Lögreglan í Lettlandi hefur nú hafið formlega rannsókn á því hvers vegna bankaáhlaup hófst á banka í landinu á dögunum, einkum sænska bankann Swebank. Frá þessu var greint á vefsíðu Wall Street Journal í dag. Sænski blaðamaðurinn Gustav Sandstrom skrifaði greinina. 12.12.2011 22:06
Cameron: Rétt ákvörðun fyrir Bretland David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, sagði ákvörðun sína um að standa fyrir utan samkomulag leiðtoga Evrópusambandsríkja, um aðgerðir til þess að koma á stöðugleika á Evrópusambandssvæðinu, hafa verið tekna með hagsmuni Bretlands í huga. 12.12.2011 16:05
Samkomulag um endurbætur í Evrópu skiptu engu Þrátt fyrir samkomulag 26 þjóða af 27 á Evrópusambandssvæðinu, sem miðar að því að auka stöðugleika á fjármálamörkuðum í Evrópu, virðast fjárfestar enn hræddir um að vandamálin séu enn óleyst. Þar helst miklar skuldir þjóðríkja, einkum í Suður-Evrópu, og veikir innviðir fjármálastofnanna. 12.12.2011 20:46
iPad 3 í febrúar á næsta ári Talið er að næsta kynslóð iPad spjaldtölvunnar komi út í febrúar á næsta ári. 12.12.2011 11:32
Innanmein Indónesíu Indonesía vex hraðar en flest önnur hagkerfi heimsins. Íbúum fjölgar jafnt og þétt og og fyrirtækjunum sömuleiðis. Eitt af verstu hindrunum fyrir hagkerfi landsins er þó innanmein. Spilling. 12.12.2011 08:54
Markaðir í Evrópu í niðursveiflu Markaðir í Evrópu hófu daginn með niðursveiflu. Þetta bendir til að fjárfestar í Evrópu séu ekki jafnbjartsýnir og fjárfestar í Asíu á að samkomulagið á leiðtogafundi Evrópusambandsins fyrir helgina sé nægilegt til að vinna á skuldakreppunni á evrusvæðinu. 12.12.2011 08:27
Rússi gripinn við að smygla smjöri til Noregs Norski tollurinn stoppaði Rússa með ólöglegt smjör á landamærunum við Svíþjóð í bænum Svinesund um helgina. Rússinn ætlaði að smygla 90 kílóum af smjöri til Noregs í flutningabíl sínum en komst ekki undan árvökulum augum norskra tollvarða. 12.12.2011 07:00
Markaðir sýna blendin viðbrögð við leiðtogafundinum Viðbrögð markaða í Asíu í nótt gagnvart niðurstöðunni á leiðtogafundi Evrópusambandsins fyrir helgina er nokkuð blendin. 12.12.2011 06:56
Toyota dregur úr hagnaðarspám Japanski bifreiða- og vélaframleiðandinn Toyota hefur dregið úr væntingum um hagnað með yfirlýsingu um að hann verði að líkindum helmingi minni en áætlað var. Einkum er það vegna áhrifa af flóðunum í Tælandi á framleiðslu í landinu. 11.12.2011 18:51
Nick Clegg ósáttur við David Cameron Nick Clegg, leiðtogi frjálslyndra demókrata í Bretlandi og aðstoðarforsætisráðherra, segist ósáttur við þá ákvörðun Davids Cameron forsætisráðherra, að taka ekki þátt í samkomulagi Evrópusambandsþjóða sem miðar að því að skapa stöðugleika á Evrópusambandssvæðinu. 11.12.2011 12:03
Rykið sest og Þjóðverjar við stýrið Eftir fund leiðtoga Evrópusambandsríkja, sem lauk í gær, er Þjóðverjar nú í meiri lykilstöðu gagnvart öðrum þjóðum heldur en áður. Þetta segir Ian Traynor, blaðamaður The Guardian, í pistli. Hann skrifar frá Brussell þar sem hann fylgdist með fundinum í návígi. 10.12.2011 15:08
Markaðir tóku vel í tíðindi frá Brussel Markaðir, bæði í Bandaríkjunum og í Evrópu, brugðust gríðarlega vel við þeim tíðindum sem bárust frá Brussel í dag. Greint var frá því að helstu leiðtogar evruríkjanna hefðu komist að niðurstöðu um það hver næstu skref ættu að vera í skuldavanda ríkjanna. Nasdaq vísitalan hækkaði um 1,94% og S&P 500 hækkaði um 1,69%. Í Evrópu hækkaði FTSE um 0,83%, DAX hækkaði um 1,91% og CAC 40 um 2,48%. 9.12.2011 22:17
Norðmenn vilja lána AGS 600 milljarða Ríkisstjórn Noregs er nú að kanna möguleika á því að veita Alþjóðagjaldeyrissjóðnum nýtt lán. Þetta segir Sigbjørn Johnsen, fjármálaráðherra Noregs, í samtali við fréttamiðilinn NTB. 9.12.2011 20:47
Bretar einir fyrir utan Bretar eru nú eina þjóðin í Evrópusambandinu sem ekki er aðili að samkomulagi um aðgerðir til þess að sporna gegn skuldavanda í Evrópu. Bretar beittu neitunarvaldi þegar breytingar á sáttmála sambandsins voru til umræðu. 9.12.2011 16:53
Rauðar tölur á öllum mörkuðum Rauðar tölur voru á öllum mörkuðum í Bandarikjunum í gærkvöldi og Asíu í nótt. 9.12.2011 07:26
Smjörsending frá Danmörku stöðvuð í norska tollinum Morgunþátturinn á sjónvarpsstöðinni TV2 í Danmörku efndi til smjörsöfnunnar fyrir Norðmenn í vikunni en þar í landi ríkir mikill smjörskortur eins og kunnugt er. 9.12.2011 07:22
Leiðtogarnir mættir til Brussel Leiðtogar helstu ríkja innan Evrópusambandsins eru mættir til fundar í Brussel til þess að ræða skuldakreppuna á evrusvæðinu og finna hugsanlegar lausnir á myntvandanum. Helsta umræðuefnið á fundinum er sameiginleg tillaga Frakka og Þjóðverja um aðhald í ríkisútgjöldum sem felur í sér að ríki sem eyða of miklu verða beitt refsiaðgerðum. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, sagði við komuna til Brussel að evran hefði tapað trúverðugleika. David Cameron, forsætisráðherra Breta, segir að hann muni beita neitunarvaldi gegn öllum tillögum sem muni skaða hagsmuni Breta. 8.12.2011 19:53
Stewart gróðavænlegust Fjármálatímaritið Forbes hefur útnefnt Kristen Stewart, aðalleikkonu Twilight-myndanna, þá gróðavænlegustu í kvikmyndabransanum. 8.12.2011 17:00
Sarkozy segir lausn um helgina vera einu leiðina Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, segir ekkert annað koma til greina fyrir leiðtoga evruríkjanna en að komast að afgerandi niðurstöðum, hvað varðar viðbrögð við vaxandi skuldavanda þjóðríkja og banka í Evrópu. Sarkozy segir enn fremur að nauðsynlegt sé að grípa strax til aðgerða og kynna þær vel fyrir opnun markað á mánudag. 8.12.2011 14:55
Stýrivextir lækkaðir í Evrópu Evrópski seðlabankinn lækkaði í dag stýrivexti um 0,25 prósentustig. Stýrivextir á evrusvæðinu standa því í einu prósenti og hafa aldrei verið lægri. Búist hafði verið við þessum tíðindum nú stendur yfir leiðtogafundur Evrópuríkja þar sem talað er um að framtíð evrunnar sé undir. Stefnt er að breytingum á sáttmála Evrópusambandsins. 8.12.2011 13:20
Rólegt á mörkuðum í Evrópu Rólegt er yfir mörkuðum í Evrópu þennan morguninn en hækkanir eru á flestum þeirra. 8.12.2011 09:22
Það felst áskorun í ótrúlegum vexti Kína Timothy Geithner, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, fjallaði ítarlega um efnahagsleg samband Bandaríkjanna og Kína í viðtali við Charlie Rose fyrir nokkru síðan. Hann segir Kínverja standa frammi fyrir áskorunum. 8.12.2011 08:37