Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gates: "Loksins fékk ég gráðuna mína" Bill Gates, stjórnarformaður og stofnandi Microsoft, flutti ræðu fyrir útskriftarnema við Harvard háskóla sumarið 2007 sem þykir með hans bestu ræðum á opinberum vettvangi. 14.11.2011 08:52
Há peningaverðlaun fyrir þann sem finnur lausn á evruvandanum Yfir 600 hagfræðingar hafa lýst áhuga sínum á að leysa vandamálið hvernig hægt sé að slíta evrusamstarfinu. Há peningaverðlaun eru í boði. 14.11.2011 07:04
Emirates leggur inn nýja pöntun hjá Boeing Bandaríski flugvélaframleiðandinn Boeing hefur gengið frá samningi við stærsta flugfélag Mið-Austurlanda, Emirates. Boeing mun afhenda flugfélaginu fimmtíu 777 breiðþotur að því er greint er frá á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC. Samningur vegna þessara kaupa er upp á 18 milljarða dollara eða sem nemur um 207 milljörðum króna. 13.11.2011 23:00
Blair varar við "katastroffu" Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands og formaður Verkamannaflokksins, varar við því að evrusvæðið geti liðast í sundur með afleiðingum sem best sé lýs sem "katastroffu". Þetta kemur fram á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC. 13.11.2011 20:56
Berlusconi sagði af sér Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, sagði af sér embætti nú í kvöld. Hann hafði verið forsætisráðherra í 17 ár. Giorgio Napolitano, forseti Ítalíu, veitti honum lausn úr embætti en líklegt þykir að Napolitano muni skipa Mario Monti sem arftaka hans, eftir því sem fram kemur á fréttavef BBC. 12.11.2011 21:38
Krónan varð til þess að íslensk heimili fóru verr út úr kreppunni Krónan varð þess valdandi að íslensk heimili fór mun verr út úr kreppunni en írsk heimili. Þetta segir írskur prófessor í alþjóðastjórnmálum sem telur að evran hafi komið í veg fyrir að írska kreppan hafi orðið jafn djúp og sú íslenska. 12.11.2011 20:05
Warren Buffett ríkasti eldri borgari í heimi Fjárfestirinn Warren Buffett er ríkasti eldri borgari í heimi. Hans helsta eign er hlutur í fjárfestingarfélaginu Bershire Hathaway en heildareignir eru metnar á 39 milljarða dollara, eða sem nemur um tæplega 4.500 milljörðum króna. Það jafngildir þremur íslenskum landsframleiðslum. 12.11.2011 17:11
Ítalir undir miklum þrýstingi frá ESB Búist er við því að neðri deild ítalska þingsins afgreiði í dag frumvarp ríkisstjórnarinnar um tæplega sextíu milljarða evra niðurskurð í opinberum útgjöldum, eða sem um níu þúsund og fimm hundruð milljörðum króna. Ítalir eru undir miklum þrýstingi frá Evrópusambandinu til að klára málið en efri deild þingsins samþykkti frumvarpið í gær. 12.11.2011 12:30
Einn af hverjum fimm vill vinna meira Einn af hverjum fimm hlutastarfsmönnum innan Evrópusvæðisins gat hugsað sér að taka að sér meiri vinnu en var að fá á síðasta ári, en flestir þeirra voru í Lettlandi, Grikklandi og á Spáni þar sem um eða yfir helmingur hlutastarfsmanna vildi vinna meira. 12.11.2011 11:30
Atkvæðagreiðslan á Ítalíu færir fjárfestum von Hlutabréfamarkaðir hækkuðu í dag eftir að ítalska þingið samþykkti aðgerðaráætlun i efnahagsmálum. Um leið og markaðir í Bandaríkjunum og í Evrópu hækkuðu, lækkaði skuldatryggingarálagið á Ítalíu. Það hafði náð methæðum í vikunni, eftir því sem fram kemur á BBC. 11.11.2011 23:22
Ríkustu konur heims eru eigendur Wal Mart Tvær konur úr Wal Mart-veldinu, Christy Walton og Alice Walton, eru ríkustu konur heims samkvæmt lista Forbes. 11.11.2011 22:00
Facebook verður að fá leyfi notenda Samskiptasíðan Facebook nálgast nú samkomulag við Alríkisviðskiptastofnun Bandaríkjanna. Nýja samkomulagið gerir ráð fyrir að Facebook verði að biðja um leyfi notenda sinna ef til breytinga kemur á friðhelgi þeirra. 11.11.2011 21:04
Allt stopp á Spáni Spænska hagkerfið er í mikilli lægð og mælist hagvöxtur tæplega í landinu, að því er fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins BBC. 11.11.2011 20:45
Omnis opnar í Reykjavík Í dag, hinn 11. nóvember 2011 opnar Omnis ehf. tölvuverslun og tölvuverkstæði í Ármúla 11. Omnis er á sínu 10. starfsári en fyrirtækið hefur undanfarin ár rekið verslanir á þremur stöðum á landsbyggðinni, í Borgarnesi, á Akranesi og í Keflavík. 11.11.2011 15:43
Geithner hvetur til aðgerða Timothy Geithner, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, hvatti í gærkvöldi ráðamenn í Asíu og Evrópu til þess að bregðast við þeim slaka sem hagkerfi heimsins glíma nú við. Þetta kom fram á fundi Geithners með leiðtogum Asíuríkja, sem breska ríkisútvarpið BBC greinir frá. 11.11.2011 09:53
Hægri og vinstri menn "grilla" forstjóra Lehman Ólíkt því sem þingið ákvað að gera hér á landi, þá kölluðu bandarískir þingmenn bankastjóranna af Wall Street í opnar yfirheyrslur. Richard Fuld, fyrrverandi stjórnarformaður og forstjóri Lehman Brothers, fékk að finna fyrir því frá bæði demókrötum og repúblikönum þegar hann kom fyrir þingið árið 2009. 11.11.2011 08:41
Olíuframleiðsla Líbíu fer í 700.000 tunnur á dag um áramótin Olíuframleiðslan í Líbíu verður komin í um 700.000 tunnur á dag um áramótin sem er nær helmingur af því sem framleiðslan var fyrir uppreisnina í landinu sem hófst í febrúar síðastliðnum. 11.11.2011 07:29
Minni vandi að vinna olíu á norðurslóðum en talið var Vandamálin við að vinna olíu í Barentshafi og norðurslóðum eru mun minni en áður var talið. 11.11.2011 07:25
Apple gefur út uppfærslu fyrir iOS 5 Tölvurisinn Apple hefur gefið út uppfærslu fyrir iOS 5. Stýrikerfið er það nýjasta sem Apple framleiddi fyrir iPhone 4S og iPad spjaldtölvuna. 10.11.2011 20:00
Papademos nýr forsætisráðherra Grikklands Grikkinn Lucas Papademos, fyrrverandi varabankastjóri Seðlabanka Evrópu, var í dag skipaður forsætisráðherra Grikkja, samkvæmt frétt BBC. Mynduð hefur verið ný samsteypustjórn þriggja flokka í Grikklandi til að fást við þá skelfilegu stöðu sem komin er upp í efnahagslífi landsins. 10.11.2011 13:30
Tóku skortstöðu gegn viðskiptavinunum Carl Levin, öldungardeildarþingmaður bandaríkjaþings, spurði Llyod Blankfein, stjórnarformann og forstjóra Goldman Sachs spjörunum úr í bandaríska þinginu um afleiður og tryggingar, fyrr á þessu ári. "Þið voruð að taka skortstöðu gegn viðskiptavinum ykkar,“ sagði Levin og gekk á Blankfein. Þessi starfsemi Goldman Sachs er nú til rannsóknar hjá yfirvöldum í Bandaríkjunum. 10.11.2011 09:01
Mikil niðursveifla á mörkuðum Stjórnmálaóvissan í Grikklandi og á Ítalíu olli því að markaðir í Bandaríkjunum fóru í mikla niðursveiflu í gærkvöldi. 10.11.2011 07:21
Hætta á að olíuverðið fari í 150 dollara á tunnuna Alþjóða orkumálastofnunin gerir ráð fyrir stighækkandi olíuverði í heiminum fram til ársins 2035. Hætta er á að olíuverðið í 150 dollara á tunnuna í náinni framtíð. 10.11.2011 07:19
Hvað sagði Jobs við Zuckerberg? Mark Zuckerberg stofnandi Facebook segir að hann hafi oft leitað ráða hjá Steve Jobs stofnanda Apple áður en hann lést en þeir urðu ágætis félagar síðustu árin. Hann segist hafa spurt Jobs hvernig ætti að byggja upp gott starfslið og hvernig eigi að framleiða frábærar vörur. Hann neitar því hinsvegar að þeir hafi nokkurn tíma rætt um að Apple myndi kaupa Facebook. Þetta kemur fram í ítarlegu viðtali Charlie Rose á PBS við Zuckerberg þar sem farið er yfir víðan völl. Þar kemur meðal annars fram að Facebook muni aldrei fara út í framleiðslu á tölvuleikjum. 9.11.2011 23:00
Hrun á hlutabréfamörkuðum Mikil lækkun varð á hlutabréfamörkuðum í Bandaríkjunum í dag. Þannig lækkaði Nasdaq vísitalan um tæplega fjögur prósent og S&P 500 vísitalan um 3,8% prósent. Erlendir fjölmiðlar tala margir hverjir um hrun fremur en lækkun. 9.11.2011 22:27
Adobe segir skilið við Flash Bandaríski hugbúnaðarrisinn Adobe Systems tilkynnti í dag að fyrirtækið muni hætta þróun á Flash margmiðlunarhugbúnaðinum fyrir snjallsíma. Flash er þungamiðja fjölmiðlunar í stýrikerfum margra snjallsíma, þar á meðal í Android og BlackBerry. 9.11.2011 21:00
Áhyggjur vegna vanda Ítalíu magnast Áhyggjur fjárfesta af fjárhagsvanda Ítalíu hafa magnast í dag, þvert á það sem margir höfðu spáð fyrir um fyrir sólarhring síðan. Á vefsíðu Wall Street Journal í gær kom meðal annars fram að fjárfestar horfðu til þess með tilhlökkun að Silvio Berlusconi væri að hætta störfum. 9.11.2011 20:30
Lækkanir á mörkuðum Miklar lækkanir hafa verið í dag á hlutabréfamörkuðum í Evrópu og Bandaríkjunum. Flestar vísitölur hafa lækkað um á bilinu 1,5% til 2,5%. Hlutabréfamarkaðurinn í Bandaríkjunum lokar ekki fyrr en í kvöld og því ekki hægt að útiloka að hann rétti úr kútnum. 9.11.2011 16:19
Papandreou á fund forseta Svo virðist sem ný ríkisstjórn verði kynnt í Grikklandi síðar í dag en George Papandreou, forsætisráðherra, mun ganga á fund forseta landsins, Carolos Papoulias, klukkan 15, samkvæmt frásögnum erlendra fjölmiðla. Papandreou mun á fundinum afhenda afsagnarbréf sitt, samkvæmt fréttum erlendra miðla. 9.11.2011 14:06
Facebook getur komið þér í steininn - nokkrir örlagaríkir statusar Facebook statusar geta verið varhugaverðir. Stundum virðist fólk ekki átta sig á því að það sem sett er sem status á Facebook síðunni getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir viðkomandi. Vefsíðan Mental Floss hefur tekið saman nokkrar stöðuuppfærslur sem eiga það sameiginlegt að hafa haft alvarlegar afleiðingar fyrir viðkomandi. 9.11.2011 13:13
Hefja miðasölu á morgun easyJet ætlar að hefja sölu á ferðum til Lundúna strax á morgun en fyrr í dag var sagt frá því í tilkynningu að flugfélagið myndi hefja sölu í dag.. 9.11.2011 11:01
Enn hækkar álagið á ítölsk ríkisskuldabréf Ekkert lát er á hækkunum á áhættuálaginu á ítölsk ríkisskuldabréf. Bréf til 10 ára fóru í tæplega 6,9% í morgun en ástæðan er óvissan í efnahagsmálum landsins og gífurleg skuldabyrði þess. 9.11.2011 09:57
Góðar líkur á að vinnanleg olía hafi fundist við Grænland Góðar líkur eru á því að skoska olíufélagið Cairn Energy hafi loksins fundið vinnanlega olíu við Grænland. 9.11.2011 08:01
Lagarde varar við glötuðum áratug Christine Lagarde forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins segir að hætta sé á að efnahagskerfi heimsins lendi í glötuðum áratug. 9.11.2011 07:56
Markaðir tóku kipp við afsögn Berlusconi Hlutabréfavísititölur í Bandaríkjunum tóku kipp upp á við í gærkvöldi þegar fréttist að Silvio Berlusconi hefði tilkynnt um fyrirhugaða afsögn sína sem forsætisráðherra Ítalíu. 9.11.2011 07:25
Obama valdamestur - Gates valdmestur í einkageiranum Á uppfærðum lista viðskiptatímaritsins Forbes yfir valdamesta fólk heims eru fyrst og fremst þekkt andlit af sviði alþjóðlegra stjórn- og efnahagsmála. Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, er valdamestur í stjórnmálum og Bill Gates, forstjóri Microsoft, í einkageiranum en aðeins tveir úr einkageiranum komast inn á topp tíu listann. Ásamt Gates er það Mark Zuckerberg, forstjóri og stærsti eigandi Facebook. 8.11.2011 22:00
Markaðir lokuðu grænir Markaðir í Evrópu og Bandaríkjunum lokuðu með grænum tölum, hækkunum upp á 1 til 1,5 prósent. Hér á Íslandi lækkaði gengi bréfa í Icelandair um 1,09% og stendur gengið nú í 5,42% en bréf í Marel hækkuðu um 0,41% og stendur gengi bréfanna nú í 121,5. 8.11.2011 21:17
Credit Suisse undir eftirliti bandarískra yfirvalda Bandarísk yfirvöld eru enn að berjast gegn því að svissneskir bankar aðstoði ríka Bandaríkjamenn við að skjóta peningum undan skatti. Nú síðast hefur svissneski risabankinn Credit Suisse sent viðskiptavinum sínum bréf og tilkynnt um að bankinn þurfi að gefa yfirvöldum nákvæmar upplýsingar um reikningsupphæðir og fleira. 8.11.2011 20:30
Berlusconi hefur staðið af sér 50 vantrausttillögur Silvio Berlusconi er ekki óvanur vantrausttillögum. Fimmtíu sinnum hafa verið bornar upp slíkar tillögur í þinginu sem hann hefur staðið af sér. 8.11.2011 15:02
Berlusconi berst fyrir pólitísku lífi sínu Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, berst nú fyrir pólitísku lífi sínu en aðgerðir ríkisstjórnar hans í ríkisfjármálum verða bornar undir þingið í landinu seinna í dag. Fulltrúar ríkisstjórnar Berlusconis funduðu með stjórnarandstöðunni í ellefu tíma í gær, með það fyrir augum að afla trausts hennar fyrir atkvæðagreiðsluna í þinginu. 8.11.2011 11:18
Höndin var ekki "ósýnileg" - hún var ekki þarna Joseph Stiglitz, nóbelsverðlaunahafi í hagfræði, hefur marg sinnis mótmælt kenningu hagfræðinginsins Adam Smith, um hina "ósýnilegu hönd" markaðarins, og sagt hana vera gallað og einfeldningslega. 8.11.2011 08:47
Grikkir kynna nýjan forsætisráðherra í dag Tilkynnt verður um nýjan forsætisráðherra Grikklands í dag. Samkvæmt grískum fjölmiðlum komust Georg Papandreú, fráfarandi forsætisráðherra og leiðtogi vinstri flokksins Pasok, og Antonis Samaras, leiðtogi hægri flokksins Nýtt lýðræði, að samkomulagi um forsætisráðherra í samsteypustjórn flokkanna í gærkvöldi. 8.11.2011 01:00
Ryanair hagnast á krepputímum Rekstur Ryanair gengur vel og jókst hagnaður félagsins um 23% á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Fór úr 398 milljónum evra í 463 milljónir evra eftir skatt, að því er fram kemur á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC. 7.11.2011 20:45
Lítilleg hækkun á mörkuðum í Bandaríkjunum Helstu vísitölur hlutabréfamarkaða í Bandaríkjunum hækkuðu lítillega í dag eftir að hafa sýnt lækkanir fyrri part dags. Nasdaq vísitalan hækkaði um 0,34% á meðan S&P hækkaði um 0,6%. Markaðir í Evrópu lækkuðu hins vegar flestir, á bilinu 0 til 2%. Óvissa um stöðu efnahagsmála í Evrópu heldur áfram að vera drifkraftur sveiflna á markaði, að því er segir á vef Wall Street Journal. 7.11.2011 21:21
Lánamarkaðir svo gott sem lokaðir fyrir Ítalíu Álag á tíu ára ríkisskuldabréf Ítalíu náði nú skömmu fyrir hádegi hæsta gildi sem það hefur mælst í á þessu ári. Álagið er nú 6,64%. Þetta þýðir að fjármagnskostnaður landsins er það hár að nær ómögulegt er fyrir landið að endurfjármagna skuldir sínar en áhyggjur af fjárhagsvanda Ítalíu hafa farið vaxandi undanfarna daga. 7.11.2011 13:03