Fleiri fréttir

Íhuga gjaldþrot einstakra ríkja í Bandaríkjunum

Þingmenn í Bandaríkjunum vinna nú bakvið tjöldin að leiðum til þess að einstaka ríki innan landsins geti orðið gjaldþrota. Ætlunin er að með því að lýsa yfir gjaldþroti geti ríkin sloppið við óviðráðanlegar skuldir þar á meðal eftirlaun sem þau hafa skuldbundið sig til að greiða opinberum starfsmönnum.

Kína næst stærsta efnahagsveldi veraldar

Kína náði þeim markverða árangri á dögunum að verða næst stærsta efnahagsveldi veraldar á eftir Bandríkjunum. Japan fellur því í þriðja sætið.

Sjórán kosta dönsk skipafélög milljarða

Sjórán kosta dönsk skipafélög allt að milljarði danskra kr. á hverju ári eða yfir 20 milljarða kr. Samband danskra skipafélaga (Danmarks Rederiforening) er búinn að fá nóg af ástandinu og krefst þess að stjórnvöld grípi til aðgerða.

Eigendur grískra skuldabréfa fá ekki allt greitt

Þeir sem sitja uppi með grísk ríkisskuldabréf geta ekki búist við því að fá þau að fullu endurgreidd nema lánakostnaður gríska ríkisins lækki. Þetta segir Andrew Wilson fjárfestingastjóri hjá Goldman Sachs Group í London.

Hagnaður Goldman Sachs minnkaði um 52%

Hagnaður bandaríska bankans Goldman Sachs minnkaði um 52% á fjórða ársfjórðungi í fyrra miðað við sama tímabil árið áður. Þessi niðurstaða olli fjárfestum vonbrigðum og hafa hlutabréf í bankanum lækkað eftir opnun markaða vestan hafs.

Mikil vaxtalækkun á portúgölskum skuldabréfum

Verulega dró úr þrýstingi fjármálamarkaða á Portúgal í dag. Boðin voru út ríkisskuldabréf til eins árs að upphæð 750 milljónir evra. Vaxtakrafan reyndist 4,03% en til samanburðar má nefna að í samskonar útboði í desember s.l. var vaxtakrafan 5,28%.

Mikil aukning á verðbréfasvindli i Danmörku

Fjöldi lögreglumála vegna verðbréfasvindls hefur tvöfaldast milli ára í Danmörku. Samkvæmt upplýsingum frá danska fjármálaeftirlitinu vísaði eftirlitið 75 slíkum málum til lögreglurannsóknar í fyrra. Árið áður var hinsvegar um 35 mál að ræða.

Batmanbíllinn til sölu á eBay

Batmanbíllinn sem notaður var í myndinni Batman Returns árið 1992 er nú til sölu á eBay. Með honum fylgir upprunalegur samningur Warner Brothers og DC Comics um notkun bílsins í myndinni.

Metafkoma hjá Apple

Hlutabréf í tölvurisanum Apple hækkuðu í verði eftir lok markaða í gær eftir að tilkynnt var um metafkomu hjá félaginu sem skilaði sex milljörðum bandaríkjadollara í hagnað á öðrum ársfjórðungi og aukningu í veltu sem nemur 70 prósentum.

Hækkandi olíuverð er þróun sem bítur í skottið á sér

Verð á bensíni og dísil­olíu hefur náð hæðum sem hér hafa ekki sést áður. Skammt er síðan verð á þjónustustöðvum náði 220 króna markinu og hafði verðið þá aldrei verið hærra. Forsvarsmenn olíufélaga gera ekki ráð fyrir að verðið gangi niður þegar fram í sækir, nái jafnvel 250 krónum áður en árið er úti.

Ullarskortur yfirvofandi vegna flóðanna í Ástralíu

Ullarskortur er yfirvofandi í heiminum vegna flóðanna í vestanverðri Ástralíu. Flóðin í Queensland ásamt flóðum og þurrkum á öðrum sauðfjárræktarsvæðum landsins gera það að verkum að yfirvöld hafa dregið verulega úr áætlunum um ullarframleiðsluna í ár.

Ósóttar jólastjörnur leiddu til gjaldþrots

Garðyrkjufélagið Rosanova í Allested-Vejle á Fjóni í Danmörku hefur verið úrskurðað gjaldþrota. Höfuðástæðan fyrir gjaldþrotinu eru um 150.000 jólastjörnur sem viðskiptavinir höfðu pantað en sóttu hvorki né greiddu fyrir.

OPEC eykur olíuframleiðsluna hægt og hljóðlega

Samtök olíuframleiðenda, OPEC, hafa aukið framleiðslu sína hægt og hljóðlega eftir að heimsmarkaðsverð á olíu fór að daðra við 100 dollara á tunnuna. Þetta kemur fram í mánaðarlegri skýrslu IEA eða Alþjóðlegu orkustofnunarinnar.

Siglt um heimshöfin á eftirlíkingu af Mónakó

Verið er að undirbúa smíði ofursnekkju sem slær allar aðrar slíkar út. Snekkjan verður eftirlíking á furstadæminu Mónakó og þar verður m.a. til staðar Formúlu 1 kappakstursbrautin í furstadæminu, að vísu í gokart útgáfu.

Goldman Sachs hættir við Facebooksölu

Bankinn Goldman Sachs er hættur við að bjóða efnuðum bandarískum viðskiptavinum sínum hlutdeild í 1,5 milljarða dollara fjárfestingu í Facebook. Ástæðan er sú gífurlega fjölmiðlaumfjöllun sem nýleg 500 milljón dollara kaup Goldman Sachs og rússnesks félags hafa valdið.

Kínverjar lána orðið meira en Alþjóðabankinn

Kínverjar lána gífurlegar upphæðir til þróunarlanda með það að markmiði að ná haldi á náttúruauðlindum þeirra. Á síðustu tveimur árum hafa Kínverjar lánað þessum löndum meira fé en Alþjóðabankinn.

Bakkavör dregur úr uppsögnum í Bretlandi

Bakkavör hefur náð samkomulagi við verkalýðsfélagið The Unite union í Lincolnshire í Bretlandi. Samkomulagið felur í sér að Bakkavör dregur verulega úr áformum sínum um uppsagnir í verkmiðju sinni í héraðinu.

Fréttaskýring: Evrulönd á krossgötum

Margir topphagfræðingar hafa í dag lýst þeirri skoðun sinni að leyfa eigi Grikklandi að verða gjaldþrota. Slíkt eigi einnig að leyfa Portúgal og Írlandi ef þurfa þykir. Þetta kemur fram í leiðara í hinu virta tímariti The Economist og hjá greiningardeildum banka á borð við Goldman Sachs og Barclay´s.

Airbus eykur framleiðsluna níunda árið í röð

Níunda árið í röð hefur flugvélaframleiðandinn Airbus aukið framleiðsluna og árið 2010 var metár í afhendingu flugvéla. Afhentar voru 510 flugvélar (árið 2009 voru 498 vélar afhentar) til 94 viðskiptavina (19 þeirra voru nýir viðskiptavinir).

Bandarískir bankar yfirtóku milljón íbúðir í fyrra

Dapurlegt met var slegið á síðasta ári í Bandaríkjunum en þá yfirtóku bankans landsins ekki minna en milljón íbúðir þar sem eigendur þeirra gátu ekki staðið í skilum með lán sín. Talið er að þetta met verði svo aftur slegið í ár.

Rífandi gangur hjá verslunum Landsbankans

Rífandi gangur var hjá þeim verslunum Landsbankans í Bretlandi sem heyra undir skartgripafyrirtækið Aurum. Jólaverslunin gekk vonum framar og jókst salan um 14,5% hjá Aurum á síðustu fimm vikunum fram til 9. janúar s.l.

Bono hagnast um tugi milljarða á Facebook

Ef nýlega kaup Goldman Sachs og Digital Sky Technologies (DST) á hlut í samskiptavefnum Facebook gefa rétta mynd af markaðsvirði vefsins er ljóst að Bono, hinn litríki söngvari írsku hljómsveitarinnar U2, hefur hagnast um tugi milljarða kr.

Fitch setur lánshæfi Grikklands í ruslflokk

Matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur ákveðið að setja lánshæfiseinkunn Grikklands í ruslflokk eða BB+ með neikvæðum horfum. Þar með fylgir Fitch í fótspor Moody´s og Standard & Poor´s sem einnig eru með lánshæfieinkunn landsins í ruslflokki.

Eignarhald ATP ógnar framtíð FIH bankans

Matsfyrirtækið Moody´s segir í nýju áliti að lánshæfiseinkunn FIH bankans hafi verið sett á neikvæðar horfur. Ástæðan er eignarhald ATP, stærsta lífeyrissjóðs Danmerkur, eða raunar að engin lög séu enn til staðar sem heimili ATP að veita FIH bein fjárframlög ef illa fari í rekstri bankans.

Methagnaður hjá stærstu verslun Norðurlanda

Sænska verslunin Gekås skilaði methagnaði á síðasta ári. Nam hagnaðurinn 3,8 milljörðum sænskra kr. eða um 66 milljörðum kr. Veltan nam 25,7 milljörðum sænskra kr. á árinu.

Danskur tóbaksrisi í milljarðakaupum vestan hafs

Danski tóbaksrisinn Skandinavisk Tobakskompagni (STG) hefur keypt Lane Ltd. eitt af dótturfélögum Reynolds í Bandaríkjunum fyrir rúmlega 200 milljónir dollara eða um 23 milljarða kr. Með kaupunum verður STG leiðandi fyrirtæki í framleiðslu á vindlum, smávindlum og píputóbaki í Bandaríkjunum.

Methagnaður hjá IKEA í fyrra

Sænska verslunarkeðjan IKEA, sem rekur 283 fyrirtæki í 26 löndum, skilaði methagnaði á síðasta ári. Samtals nam hagnaðurinn 2,7 milljörðum evra eða um 400 milljörðum kr.

Norðmenn kaupa Regent Street

Norski olíusjóðurinn hefur keypt 25 prósent af verslunargötunni Regent Street í Lundúnum. Kaupverðið er um 85 milljarðar íslenskra króna.

Mikill þrýstingur á að opna ný olíusvæði í Noregi

Mikill þrýstingur er nú á norsk stjórnvöld að þau opni ný svæði til olíuleitar á norska landgrunninu. Landssamtök olíuiðnaðarins í Noregi (OLF) krefjast þess að Stórþingið taki málið á dagskrá.

Alvarleg matvælakeppa í uppsiglingu í heiminum

Nýjar tölur frá bandaríska landbúnaðarráðuneytinu um birgðastöðu landsins í korni og sojabaunum benda til að alvarleg matvælakreppa sé í uppsiglingu í heiminum. Kreppan gæti orðið verri en sú sem skall á árið 2008 og hafði í för með sér blóðug uppþot í mörgum löndum.

Eigandi IKEA er auðugasti íbúi Sviss

Ingvar Kamprad eigandi IKEA er auðugasti íbúi Sviss samkvæmt nýjum lista sem tímaritið Bilanz hefur tekið saman um 300 auðugustu íbúa landsins. Samkvæmt Bilanz nemur auður Kamprad 38 milljörðum svissneskra franka eða sem svarar til tæplega 4.600 milljarða kr.

Dressmann og Rolling Stones í eina sæng

Norska herrafatakeðjan Dressmann og hljómsveitin Rolling Stones hafa náð samkomulagi um samstarf sín í millum. Þar að auki hefur Dressmann látið hanna nýtt lógó og ætlar að breyta innréttingum í verslunum sínum.

Eik Banki seldur færeysku tryggingarfélagi

Eik Banki í Færeyjum verður seldur dótturfélagi Tryggingafélags Færeyja, TF Holding. Félagið var hið eina sem bauð í bankann og hljóðar tilboðið upp á 400 til 500 milljónir danskra kr. eða um 8 til 10 milljarða kr.

Norrænn markaður styður vöxtinn

Útflutningur frá Eistlandi nam 860 milljónum evra (132,4 milljörðum króna) í nóvember síðastliðnum samkvæmt bráðabirgðatölum eistnesku hagstofunnar. Aukning frá fyrra ári nemur 48 prósentum að því er fram kemur í umfjöllun Baltic Business News.

Bændur græddu milljarð á Facebook

Vefslóð og viljugur Facebook eigandi höfðu það í för með sér að bændasamtök í Bandaríkjunum eru nú 8,5 milljónum dollara eða um milljarði kr. ríkari.

Portúgal slapp fyrir horn í bili

Það heppnaðist hjá stjórnvöldum í Portúgal að sleppa fyrir horn í ríkisskuldabréfaútboði sínu í morgun. Það var dýrkeypt en vextirnir sem fengust voru þó undir 7% sem gert hefðu skuldir landsins ósjálfbærar.

Hagvöxtur í Þýskalandi sá mesti síðan 1990

Samkvæmt bráðabirgðatölum Þýsku hagstofunnar óx þýska hagkerfið um 3,6% á síðasta ári sem jafnframt er mesti hagvöxtur sem sést hefur á einu ári frá því að Austur- og Vestur Þýskaland voru sameinuð árið 1990.

Augu allra hvíla á Portúgal í dag

Búast má við að augu allra á alþjóðlegum fjármálamörkuðum hvíli á Portúgal í dag en þá fer fram útboð á ríkisskuldabréfum fyrir allt að 1,25 milljarða evra til fimm og tíu ára.

Danskir kornbændur hagnast um 120 milljarða

Danskir kornbændur eiga í vændum 6 milljarða danskra kr. eða yfir 120 milljarða kr. búbót sökum hinna miklu verðhækkana á korni undanfarið ár. Þetta kemur fram í Jyllands Posten í dag.

Sjá næstu 50 fréttir