Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Franska forsetafrúin selur höll sína á Ítalíu Arrivederci Ítalía og bonjour Frakkland. Franska forsetafrúin Carla Bruni hefur selt höll sína á Ítalíu til arabísk sheiks fyrir tæpa 1,4 milljarða kr.. Þar með hefur Bruni ákveðið að kveðja heimaland sitt en hún ólst upp í þessari höll. 10.2.2009 14:23
Tvö af dótturfélögum JJB Sports komin í greiðslustöðvun Tvö af dótturfélögum íþróttavöruverslunarkeðjunnar JJB Sports í Bretlandi eru komin í greiðslustöðvun. Gamla Kaupþing er nú stærsti hluthafinn í JJB Sports eftir að hafa gert veðkall í sameiginlegum hlut Exista og Chris Ronnie fyrrum forstjóra félagsins. 10.2.2009 13:37
Nær öllum sagt upp á skrifstofu Baugs í London Nær öllum starfsmönnum á skrifstofu Baugs í London verður sagt upp í dag. Aðeins Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnarformaður, Gunnar Sigurðsson forstjóri og Andrew Lobb forstöðumaður lagadeildar félagsins munu starfa þar áfram. 10.2.2009 12:50
Breskir bankastjórar grillaðir hjá þingnefnd um bankahrunið Fyrrverandi framkvæmdastjórar og stjórnarformenn tveggja stærstu banka Bretlandseyja báðust í dag afsökunar á framferði sínu fyrir bankahrun. Þeir báru vitni fyrir breskri þingnefnd þar sem hart var gengið á þá. 10.2.2009 12:27
Fjárfestapar gerir tilboð í Carnegie bankann í Svíþjóð Meðal áhugasamra kaupenda Carnegie bankans í Svíþjóð eru fjárfestaparið Patrik Enblad og Anders Böös að því er heimildir Dagens Industri herma. Þeir hafa áður sýnt Carnegie áhuga en eru nú með stuðning þriðja stærsta banka Sviss á bakvið sig. 10.2.2009 11:20
GGE bætir við hlut sinn í Envent Holdings á Filippseyjum Geysir Green Energy (GGE) mun auka hlut sinn í orkufyrirtækinu Envent Holdings á Filippseyjum úr 50% og í 80%. Jafnframt mun GGE taka við stjórn Envent. 10.2.2009 10:28
Breyta verður bankalöggjöf ESB eftir íslenska bankahrunið Breska fjármálaráðuneytið (FSA) segir að hrun íslensku bankanna hafi leitt í ljós að núverandi bankalöggjöf Evrópusambandsins sé ekki á vetur setjandi. 10.2.2009 09:30
Century Aluminium lokar álveri í Bandaríkjunum Century Aluminium hefur ákveðið að loka einu af álverum sínum í Vestur-Virginíu í Bandaríkjunum. Century er móðurfélag Norðuráls á Grundartanga og skráð í kauphöllinni hér á landi. 10.2.2009 09:15
Lækkun á bréfum í Asíu Asísk hlutabréf féllu í verði í morgun og er talið að óvissa um 800 milljarða aukabjörgunarpakka bandaríska þingsins valdi því að fjárfestar hafi stigið varlega til jarðar undanfarna daga. 10.2.2009 08:07
Rússneskir bankar leita á náðir ríkisstjórnarinnar Rússneskir bankar hafa nú leitað til ríkisstjórnar landsins og farið þess á leit að hún komi að samningaviðræðum þeirra við erlenda lánardrottna um endurfjármögnun skulda sem nema 400 milljörðum dollara og eiga að vera uppgreiddar innan fjögurra ára. 10.2.2009 07:32
Nissan segir upp 20 þúsund manns Japanski bílaframleiðandinn Nissan hefur tilkynnt um að félagið hyggist segja upp 20 þúsund manns á næsta ári. Gripið er til þessa vegna vernsandi ástands í bílasölu um allan heim en um er að ræða 8,5 prósent af öllum starfsmönnum bílarisans. Forstjóri fyrirtækisins segir að bílaiðnaðurinn um allan heim sé í miklum vandræðum og að Nissan sé engin undantekning í því sambandi. 9.2.2009 17:22
Kúafretir gætu kostað danska bændur milljónir kr. Fretir og ropar úr kúm og svínum gætu kostað danska bændur milljónir danskra króna á næstu árum verði tillögur skattanefndar Danmerkur um gjöld fyrir losun á metangasi út í andrúmsloftið að veruleika. 9.2.2009 15:37
Reiknað með aukinni sölu á frystum fiski í Bretlandi Reiknað er með að sala á frosnum matvælum í Bretlandi muni nema ríflega 5 milljörðum punda á þessu ári, og mest verði aukningin í sölu á frystum sjávarafurðum. 9.2.2009 13:26
Nissan segir upp 20 þúsund starfsmönnum Japanski bílaframleiðandinn Nissan hefur ákveðið að segja upp tuttugu þúsund manns vegna samdráttar í bílasölu. Þetta jafngildir 8,5 prósentum af öllu starfsfólki Nissan. 9.2.2009 10:29
Kaupandi fundinn að Carnegie bankanum í Svíþjóð Samkvæmt frétt í Dagens Nyheder er búið að finna kaupenda að Carnegie bankanum sænska og að tilkynnt verði um kaupin seinna í dag. Milestone átti 10% í bankanum þegar sænska ríkið þjóðnýtti hann fyrr í vetur. 9.2.2009 08:58
Segir Íslendinga vera hina nýju Pólverja Ásókn Íslendinga í störf í Noregi hefur margfaldast að undanförnu og í frétt um málið í blaðinu Aftenposten eru Íslendingar sagðir vera hinir nýju Pólverjar þar í landi. 9.2.2009 08:46
Nikkei-vísitalan lækkaði um tæpt prósent Japanska Nikkei-hlutabréfavísitalan lækkaði um tæpt prósent í morgun en jenið, gjaldmiðill Japans, styrktist hins vegar töluvert og hefur ekki haft jafnsterka stöðu gagnvart bandaríkjadollar í meira en þrjár vikur. Talið er að japanskir útflytjendur kaupi nú jen í miklum mæli til að reyna að styrkja gjaldmiðilinn. Í Hong Kong hækkuðu hlutabréf í viðskiptum dagsins og þokaðist Hang Seng-vísitalan upp á við um tæpt prósent. 9.2.2009 07:26
Blankir Baugsmenn þurftu að selja þyrlu til forstjóra Iceland Fjárhagsstaða Baugs var svo bág í lok síðasta árs að félagið neyddist til að selja þyrlu í eigu þess til Malcolm Walker, forstjóra Iceland, fyrir tvær milljónir punda eða um 340 milljónir króna. 8.2.2009 10:23
Kaupþing ætlar að endurskipuleggja Mosaic Kaupþing hefur tekið yfir 49% hlut Baugs í tískuvörukeðjunni Mosaic Fashion og hyggst bankinn endurskipuleggja reksturinn að sögn The Sunday Times. Skuldir Baugs við Kaupþing nema 450 milljónum punda eða um 76 milljörðum samkvæmt blaðinu. 8.2.2009 10:16
Þingnefnd rannsakar innlán sveitarfélaga á reikninga bankanna Nefnd á vegum breska þingsins rannsakar nú þá ákvörðun margra sveitastjórna í Bretlandi að leggja sparifé inn á reikninga íslensku bankanna, en féð var fryst þegar bankarnir hrundu í október. Richard Kemp borgarfulltrúi í Liverpool borg hefur fullyrt fyrir nefndinni að viðræður við skilanefndir bankanna gæfu ástæðu til þess að vonast til að féð fengist greitt. 8.2.2009 09:46
Kanna áhættustjórnun bankastjórna Bresk yfirvöld hyggjast rannsaka bónusgreiðslur til æðstu stjórnenda í bönkum þar og tengsl launabónusa við áhættusækni. Þetta hefur Sunday Telegraph eftir Alistair Darling fjármálaráðherra. 7.2.2009 22:58
Atvinnuleysið 7,6% í Bandaríkjunum Atvinnuleysi jókst meira í Bandaríkjunum í síðasta mánuði en nokkru sinni síðan árið 1974, segir á vef breska blaðsins Times. 7.2.2009 12:18
Íbúar í Huddersfield fá enn ekkert út úr Icesave Útsvarsgreiðendur í Huddersfield í Bretlandi bíða enn eftir því að fá greidda peninga út úr Icesave reikningum Landsbanka Íslands. 7.2.2009 11:05
FIH bankinn þarf að afskrifa 10 milljarða kr. FIH bankinn danski, sem nú er í eigu íslenska ríkisins þarf að afskrifa um hálfan milljarð danskra kr. eða tæplega 10 milljarða kr. eftir árið í fyrra. Bankinn mun samt skila hagnaði eftir árið. 6.2.2009 16:04
Verð á gulli rýfur brátt 1.000 dollara múrinn Heimsmarkaðsverð á gulli mun brátt fara yfir 1.000 dollara á únsuna og stefnir jafnvel í að setja nýtt met. Fjárfestar standa nú í röðum eftir að kaupa gull sökum þeirrar óvissu sem ríkir nú á fjármálamörkuðum heimsins. 6.2.2009 15:09
Greiðslustöðvun BG Holding samþykkt í London Dómstóll í London hefur fallist á beiðni skilanefndar Landsbankans um greiðslustöðvun hjá BG Holding félagi Baugs í London. Jafnframt hefur PriceWaterhouseCoopers verið skipað sem stjórnendur félagsins meðan á greiðslustöðvuninni stendur. 6.2.2009 12:10
Volvo blæðir út í fjármálakreppunni Bílaframleiðandinn Volvo í Svíþjóð skilaði tapi upp á 2,5 milljarða sænskr kr. eða um 35 milljörðum kr. á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Greinendur höfðu hinsvegar spáð tapi upp á þriðjung af þeirri upphæð eða 807 milljónir sænskra kr.. 6.2.2009 11:11
Danske Bank kominn á hnéin eftir gífurleg útlánatöp Stærsti banki Danmerkur, Danske Bank, er nú kominn á hnéin eftir gífurleg útlánatöp á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Og Peter Straarup bankastjóri bankans aðvarar hlutahafa um að ástandið muni versna á þessu ári. 6.2.2009 09:44
Toyota spáir miklu tapi Japanski bílaframleiðandinn Toyota gerir ráð fyrir að tapa 450 milljörðum jena, jafnvirði rúmlega 560 milljarða króna, vegna samdráttar á bílamarkaði á síðasta ári. Þetta er þrisvar sinnum meira en fyrri spá bílaframleiðandans hljóðaði upp á. 6.2.2009 09:22
Skilanefnd Landsbankans svínaði fyrir konungsfjölskyldu Saudi Arabíu Með því að ganga að veðunum í BG Holding í Bretlandi kom skilanefnd Landsbankans í veg fyrir að nokkrir meðlimir konungsfjölskyldunnar í Saudi Arabíu fjárfestu í Hamleys leikfangaverslununum. 6.2.2009 09:02
Hækkun í Asíu Hlutabréf á Asíumörkuðum hækkuðu í verði í morgun, einkum bréf banka og hátæknifyrirtækja. Aukinnar bjartsýni gætir nú hjá fjárfestum vegna björgunaraðgerða ríkisstjórna og hækkuðu bréf Lenovo-tölvuframleiðandans í Hong Kong um 10 prósent eftir að skipt var um stjórn hjá fyrirtækinu. Japanska Nikkei-hlutabréfavísitalan þokaðist upp um eitt og hálft prósent. 6.2.2009 07:30
Samvinna er forsenda hagvaxtar Fjármálaráðherra Bandaríkjanna, Timothy Geithner, sagði í dag að það væri mjög mikilvægt fyrir Bandaríkin að vinna með öðrum ríkjum að því að auka hagvöxt í heiminum. 5.2.2009 21:50
Eignir Baugs nema um þriðjungi af skuldum félagsins Blaðið Telegraph hefur eftir heimildarmönnum sínum að eignir Baugs í Bretlandi nemi í besta falli um þriðjungi af skuldum félagsins. Eignirnar eru metnar á um 400 milljónir punda en skuldir Baugs við íslensku bankanna nemi um 1,3 milljarði punda eða um 200 milljörðum kr.. 5.2.2009 13:07
Stýrivextir í Bretlandi aldrei lægri Englandsbanki lækkaði stýrivextir um 50 punkta í dag og fara þeir við það úr 1,5 prósentum í eitt prósent. Þeir hafa aldrei verið lægri. 5.2.2009 12:56
Óbreyttir stýrivextir á evrusvæðinu Evrópski seðlabankinn hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 2,0 prósentum. Þetta er í samræmi við væntingar en bankinn hefur lækkað vextina hratt síðastliðna fjóra mánuði. 5.2.2009 12:49
Landsbankamenn boðaðir á fund í breska fjármálaráðuneytinu Forráðamenn skilanefndar Landsbankans hafa verið boðaðir á fund í breska fjármálaráðuneytinu í dag en formaður nefndarinnar, Lárus Finnbogason, er nú staddur í London. 5.2.2009 11:04
Lögsókn hafin gegn gamla Glitni í Noregi Fjórir af fyrrum viðskiptavinum Glitnis í Noregi, sem nú heitir BNbank, telja sig hlunnfarna af bankanum og ætla í mál gegn honum. 5.2.2009 09:52
Bresk stjórnvöld æf af reiði út í skilanefnd Landsbankans Bresk stjórnvöld munu vera æf af reiði út í skilanefnd Landsbankans sökum áforma þeirra um að setja Baug í greiðslustöðvun. Þetta kemur fram í grein sem viðskiptafréttastjóri blaðsins The Times skrifar í dag. 5.2.2009 09:18
Baugur og Straumur leita að kaupanda að Magasin du Nord Carsten Fensholt fjármálastjóri Magasin du Nord í Kaupmannahöfn segir að greiðslustöðvun Baugs hafi ekki bein áhrif á rekstur verslunarinnar. Hinsvegar leiti Baugur í samvinnu við Straum nú ákaft að kaupenda að versluninni. 4.2.2009 10:49
Mikil óvissa um eignir Baugs í Bretlandi og Danmörku Beiðni Baugs um greiðslustöðvun hefur vakið mikla athygli í breskum og dönskum fjölmiðlum og greina helstu blöð þessara landa frá málinu á vefsíðum sínum. Þar er m.a. tekið fram að mikil óvssa ríki nú um eignir Baugs í þessum löndum. 4.2.2009 10:06
ILVA í Danmörku og Svíþjóð selt til IDdesign Lagerinn, sem m.a. rekur verslanir Rúmfatalagersins á Íslandi, hefur gert samning um sölu á húsgagnaverslununum ILVA í Danmörku og Svíþjóð til danska félagsins IDdesign. 4.2.2009 09:38
Kaupþing flutti 90 milljarða kr. frá Mön til London fyrir hrunið Forstjóri fjármálaeftirlitsins á Mön segir að skömmu fyrir hrun íslensku bankanna hafi Kaupþing flutt 550 milljónir punda eða rúmlega 90 milljarða kr.úr útibúi sínu á eyjunni og yfir til London. Þetta gerðist skömmu fyrir hrun íslensku bankanna og frystingu eigna þeirra á Bretlandi í kjölfarið. 4.2.2009 08:57
Óska tilboða í Actavis Eignarhaldsfélag Björgólfs Thors Björgólfssonar, Novator, hefur óskað eftir tilboðum í lyfjafyrirtækið Actavis. Bloomberg-fréttavefurinn greinir frá þessu og segir kaupverðið geta orðið allt að sex milljarða evra en skuldir fyrirtækisins séu fimm milljarðar evra. Novator óskar að sögn Bloomberg eftir því að tilboð berist í þessum mánuði. 4.2.2009 08:30
Yfirtakan á Singer & Friedlander rannsökuð sérstaklega Þingnefnd sú á breska þinginu sem er að rannsaka orsakir bankakreppunnar þar í landi hefur ákveðið að rannsaka sérstaklega yfirtöku Kaupþings á Singer & Friedlander bankanum árið 2005. 4.2.2009 08:28
Hækkun á Asíumörkuðum Hlutabréf á asískum mörkuðum hækkuðu í verði í morgun, annan daginn í röð, eftir að stjórnvöld ýmissa ríkja boðuðu enn frekari umbætur í efnahagsmálum. 4.2.2009 08:23