Fleiri fréttir

Óþarfa skortur á sjálfstrausti

Íslenskir bændur eiga skilið meira traust en ráðamenn þessa lands sýna þeim. Sú verndarstefna, sem hefur verið rekin hér af hverri ríkisstjórn á fætur annarri, ber vott um ákveðinn skort á sjálfstrausti fyrir hönd íslensks landbúnaðar.

Launin þín eru nú til sýnis

Frá og með deginum í dag og næstu tvær vikur munu upplýsingar um tekjur hvers og eins okkar liggja frammi til sýnis fyrir atbeina íslenska ríkisins.

Dreggjar samræðna

Guð blessi munninn á mér. Þessi setning kemur fyrir í skáldsögunni Svartfugl eftir Gunnar Gunnarsson þegar sögupersónu þykir hún hafa sagt of mikið um atburði sem ekki ætti að tjá sig um sakir þekkingarleysis og eðli umræðuefnisins.

Sól og skjól á nýju Lækjartorgi

Dagur B. Eggertsson skrifar

Fyrir 10 árum trúði því enginn að hægt væri að sitja úti og sötra kaffi á Íslandi. Mestu hörkutólin létu sig hafa það umvafðir lopapeysu og lyngi til fjalla. Undanfarnar vikur hafa verið þannig að jafnvel sólríkustu bernskuminningar blikna.

Milljarðamæringaávarpið

Þótt Reykjavík sé að mörgu leyti ágæt skortir hér töluvert upp á boðlega aðstöðu fyrir milljarðamæringa. Til dæmis vantar almennilegar hallir. Eina höllin sem stendur undir nafni er Sundhöllin og hún er notuð handa skítugum almenningi að baða sig.

Um öfgar og öfgaleysi

Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, birtir grein sl. miðvikudag undir fyrirsögninni Öfgalaus stefna í málefnum Palestínumanna. Þar vísar þingmaðurinn í málflutning formanns flokks síns, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, og yfirlýsinga hennar um Mið-Austurlönd.

Í skuld við Afríku

Stefán Jón Hafstein skrifar

Heimurinn horfir öðruvísi við þegar maður skoðar hann úr suðri. Ekki aðeins stjörnubjartur himinninn yfir eyðimörkum Afríku heldur líka stjörnum prýddur fundarsalur helstu leiðtoga heims. Þeir vita kannski, að engin heimsálfa hefur lagt minna til mengunar sem leiðir til loftslagsbreytinga af mannavöldum en Afríka.

Biljónsdagbók 29.7.2007

OMXI15 var 9.021,40, þegar ég tékkaði út af Hilton við Park Lane og mundi eftir ættarmótinu, og Dow Jones var 13.567,20 þegar þotan hans Jóa í Víti Energy hóf sig til flugs yfir London. Ég var þarna í fínum selskap með fjórum múltí­milljörðum, pólskum, rússneskum og tveimur arabískum sem Jói var að bjóða í mikið sukk og svolitla laxveiði heima á Íslandi.

Lúkas og Lassie

Í samræðu við félaga minn um daginn var mér bent á ákveðna samsvörun milli hundsins Lúkasar og annars hunds sem er talsvert frægari, en gekk í gegnum dálítið svipaðar hremmingar, en það er tíkin Lassie sem vafraði um Skotland og niður til Englands í leit að upphaflegum eiganda sínum, öðlingspilti í Yorkshire, eftir að hafa verið seld til illra manna af fjárhagslegum ástæðum.

Önnur nálgun

Ratsjárstofnun hefur í tvo áratugi annast einn þátt loftvarnareftirlits með mjög öflugu ratsjárkerfi. Starfsemin hefur verið snar þáttur í vörnum landsins. Bandaríkjamenn hafa greitt rekstrarkostnaðinn. Um miðjan næsta mánuð heyrir kostun þeirra á verkefninu hins vegar sögunni til.

Vopnasalar borða líka fisk

Undanfarnar vikur höfum við fylgst með óhefðbundnum aðgerðum um það bil 30 manna hóps gegn álverum og ýmsu fleiru, með dyggri aðstoð sumra fjölmiðla. Í sumum tilvikum höfum við einnig hlýtt á viðtöl við talsmenn hópsins. Þar hefur meðal annars ítrekað komið fram að mótmæli gegn álverum snúist um að ál sé notað til vopnaframleiðslu og í „hernaði“.

Húslestur

Ein af kostulegri reglum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins eftir að bjórbanninu sleppti var að lengi mátti ekki kaupa bjór í stykkjatali, heldur varð að kaupa að minnsta kosti kippu. Það var sem háttsettir embættismenn hafi óttast að almúgafólk myndi valsa inn í Ríkið, kaupa einn bjór og drekka hann.

Kristni stendur á traustum grunni

Ágúst Valgarð Ólafsson skrifar

Mér var bent á grein í Fréttablaðinu 16. júlí síðastliðinn (bls. 18), sem bar yfirskriftina „Viðheldur fáfræði kristninni?“ Ég ætla ekki að mæla því bót að menn verji eða vinni að framgangi málstaðar með því að forðast tilteknar staðreyndir, eða með því að lifa gegn eigin sannfæringu. Enginn ætti að predika það sem hann trúir ekki innst inni.

Þrífast börnin best á misjöfnu?

Á misjöfnu þrífast börnin best,“ segir í gömlu íslensku máltæki sem enn á 21. öldinni virðist lifa góðu lífi. Þetta gamla máltæki lýsir enda nokkuð vel viðhorfi íslensku þjóðarsálarinnar til barna, eða í það minnsta viðhorfi sem hefur verið í fullu gildi til skamms tíma.

Fortíðin er geymd

Suður-Afríka ein stendur á bak við meira en þriðjung allrar framleiðslu Afríkulanda sunnan Saharaeyðimerkurinnar. Hlutfallið hefur haldizt stöðugt síðan 1960, en það hefur þó farið heldur lækkandi síðan 1985.

Pólitísk rekstrarstjórn yfir Leifsstöð?

Ögmundur Jónasson skrifar

Þegar Flugstöð Leifs Eiríkssonar var gerð að hlutafélagi var ég í hópi þeirra sem andæfði því; taldi að helsta flugstöð Íslendinga ætti að vera í eigu þjóðarinnar og á forræði hennar.

Landsbyggðin og strætó

Á Íslandi búa tvær þjóðir. Ef ekki fleiri. Önnur þjóðin græðir á tá og fingri á alls konar rugli sem maður skilur ekkert í og lifir svo hátt að annað eins hefur ekki sést í Íslandssögunni.

Viðheldur fáfræði kristninni?

Sigurður Pálsson skrifar

Það er dapurlegt að menn skuli þurfa að tala um kristna kennimenn sem blekkingasmiði „sem er í mun að viðhalda sýndarmyndinni sem kirkjan hefur í gegnum aldirnar dregið upp til að viðhalda kristinni trú“, eins og Steindór kemst að orði.

Aðstæður geta breyst

Óli Kristján Ármannsson skrifar

Íslenskt hagkerfi er örugglega betur í stakk búið nú til að takast á við neikvæða umræðu á borð við þá sem fór af stað á fyrri hluta síðasta árs.

Öfgalaus stefna í málefnum Palestínu

Árni Páll Árnason skrifar

Þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, kynnti á Alþingi í vor þá fyrirætlan sína að fara til Palestínu til að kynna sér stöðu mála þar frá fyrstu hendi kallaði Staksteinar Morgunblaðsins það barnaskap. Í heimsókninni var áhersla lögð á að íslenski utanríkisráðherrann væri kominn til að hlusta og til að kynnast aðstæðum og veruleika venjulegs fólks.

Megavika kirkjunnar

Mér fannst gaman að ganga til prestsins. Frásagnirnar voru mér ekki framandi, enda hafði ég sótt sunnudagaskóla í marga vetur. Eftir fermingu hélt ég áfram að velta Guði fyrir mér en aldrei tókst mér samt að finna eirð í mínum beinum í messu.

Ljóminn í ellinni

Fátt hefur vakið með mér óttalegri hugrenningar en frásögn konu af því hvernig barnatrú linaði ótta ömmu hennar eftir að hrörnunarsjúkdómur hafði hrifsað burtu nær allar minningar hennar af lífinu. Konan taldi þetta til marks um það hve sálmar og bænir sem börn lærðu fyrr á tímum gætu komið að gagni síðar meir.

Áfengi og vextir

Pólitísk umræðuhefð á Íslandi kallar ekki á að orðum fylgi ábyrgð. Meira er um vert að þau veki athygli. Hún er oftar en ekki sett skör hærra en ábyrgðin sem að baki býr. Tvö nýleg dæmi segja sína sögu um þetta.

Við þurfum stuðning bæjarbúa

Mjög margir íbúar á Kársnesinu hafa gripið til þess ráðs að hengja borða utan á hús sín þar sem mótmælt er hugmyndum núverandi meirihluta Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna um gríðarlega þéttingu byggðar á Kársnesinu með tilheyrandi umhverfisspjöllum og auknum umferðarþunga.

Loks fulltrúi fólksins í ríkisstjórn

Albert Jensen skrifar

Röðun í ráðuneyti nýju stjórnarinnar er Samfylkingunni til sóma. Sjálfstæðisflokkurinn var ekki eins lýðræðislegur. Það hefði verið flokknum til framdráttar að gera Guðfinnu að ráðherra án þess að vitað sé hvers er að vænta af henni eða Guðlaugi.

Óskiljanlegt langlundargeð

Eiður Guðnason skrifar

Fyrir fáeinum dögum las ég í Fréttablaðinu, að núverandi meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkur stefndi ekki að millilandaflugi um Reykjavíkurflugvöll. Þetta kom mér spánskt fyrir sjónir.

Að muna ártöl

Ef tímatal okkar væri miðað við Miklahvell væri býsna erfitt að setja á sig ártöl úr mannkynssögunni. Til dæmis að muna að Kristur fæddist árið 13699999993 og Múhameð flýði frá Mekka til Medína árið 13699998615 og Ísland varð lýðveldi árið 13999998056.

Enn um Jesúm og heimsendi

Fyrir skemmstu birtist á þessum síðum greinin „Viðheldur fáfræði kristninni?“ þar sem ég benti m.a. á þá staðreynd að stór hluti fræðimanna í Bandaríkjunum og Þýskalandi hafi frá því bók Alberts Schweitzer „Leitin að hinum sögulega Jesú“ kom út árið 1906 litið á Jesúm sem heimsendaspámann.

Opið bréf til bæjarstjóra Kópavogs

Sæll Gunnar. Hversu lengi ætlar þú að skella skollaeyrum við óánægju íbúa á Kársnesi vegna fyrirhugaðra skipulagsbreytinga á svæðinu? Mér brá þegar ég las svar þitt í Fréttablaðinu (21.júli 07) við áhyggjum íbúa hér.

Engin hækkun á lífeyri aldraðra enn

Björgvin Guðmundsson skrifar

Stjórnmálaflokkarnir lofuðu eldri borgurum margvíslegum kjarabótum fyrir kosningar. Engin hækkun hefur enn orðið á lífeyri aldraðra frá almannatryggingum. Það eina,sem hefur gerst í málefnum aldraðra er að þeir,sem eru 70 ára og eldri, geta nú farið út á vinnumarkaðinn án þess að sæta skerðingu tryggingabóta vegna atvinnutekna.

Ómetanleg saga af litlum hundi

Jón Kaldal skrifar

Hlín Agnarsdóttir leikskáld og Haraldur Ólafsson veðurfræðingur voru í bráðskemmtilegu spjalli í Fréttablaðinu í gær. Meðal þess sem bar á góma var fréttaflutningur af kjölturakkanum Lúkasi, sem er orðinn þjóðþekktur fyrir meintan skelfilegan dauðdaga, upprisu og almennar píslir sem mál hans hefur leitt yfir alla sem koma við sögu.

Trúarfíkn

Í einni af skáldsögum Terrys Pratchetts kemst Dauðinn að þeirri niðurstöðu að lífið sé vanabindandi. Enginn getur hætt eftir fyrsta andardráttinn, sá fyrsti kallar á þann næsta og þannig koll af kolli uns fólk leggur sig í kjánalega framkróka og veður eld og brennistein til þess eins að halda lífi.

Hverju er Ingibjörg Sólrún búin að lofa fyrir okkar hönd?

Á vefsíðu ísraelska utanríkisráðuneytisins hinn 16. júlí sl. segir frá heimsókn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur til Ísraels. Þar er greint með velþóknun frá því hverja hún muni ræða við í heimsókn sinni og hvert hún muni fara, en það er meðal annars til "norðurlandamæra Ísraels sem liggja að Sýrlandi og Líbanon."

Lífið utan fréttanna

Stefán Jón Hafstein skrifar

Impala-antilópan sem gengur hægum skrefum niður að vatnsbólinu er á mælikvarða fegurðar og tígulleika einhvers staðar ofan við 9,5. Paris Hilton fréttatímanna er kolfallin í samanburði.

Strákur sem galdrar börn að bókum

Síðasta bókin um galdrastrákinn Harry Potter kemur út í dag. Þar með er endahnútur bundinn á sögu þessa óvenjulega drengs sem kynntur var í fyrstu bókinni fyrir tíu árum, drengsins sem með töframætti sínum fékk milljónir barna til að hverfa inn í ævintýraheim bókarinnar sem mörg þeirra hefðu líklega ekki kynnst ella.

Þegar Einar Oddur er allur

Við heilsuðumst kurteislega og kankvíslega í vor, þegar sumarþingið tók til starfa. Það var alltaf blik í augunum á honum Einari Oddi, prakkaraskapur, glettni. Bros.

Kæri Hannes!

Bestu þakkir fyrir bréfið sem gladdi mig ósegjanlega. Þar færir þú mér þau merku tíðindi, og sennilega ýmsum lesendum Bréfs til Maríu líka, að Henri Lepage sé góðvinur þinn.

Vínverð

Nokkur umræða hefur verið undanfarið um álagningu á léttvín og bjór. Þeir sem kaupa sér slíka vökva úr búð hér á landi eru tilnneyddir til þess að greiða til ríkisins óheyrilega hátt hlutfall af söluverði vörunnar, allt upp í 90%, og eru röksemdirnar fyrir þessu einkum sagðar þær að með því að hafa verðið nógu hátt verði komið í veg fyrir að fólk fari illa út úr viðureigninni við Bakkus.

Brauðmolabisness bæjarstjórans

Árna Sigfússyni, bæjarstjóra Reykjanesbæjar, hefur nú tekist það ætlunarverk sitt að koma stórum hluta Hitaveitu Suðurnesja í hendur einkaaðila og samstarfsaðila.

Eiturefnaslysið

Ég er á gangi í dimmum undirgöngum í Laugardalnum. Það hefur orðið eiturefnaslys í sundlauginni og mengunin hefur breiðst út um dalinn. Í sýrupolli í undirgöngunum liggja þrjú börn á grúfu. Ég tek tvö þeirra upp og legg við öxl mér, rauðir blettir á höfði þeirra. Hið þriðja sýnist mér þegar látið og ég læt það því liggja, en arka af stað með hin tvö í leit að einhverjum sem getur keyrt þau á sjúkrahús og mig heim.

Um veðrið og verðið

Í miðri hitabylgjunni bárust þær fréttir enn einu sinni að Ísland væri dýrasta land í Evrópu. Þýðir það ekki nokkurn veginn að Ísland sé dýrasta land í heimi? Auðvitað nennti ég ekki að spá í þetta frekar en aðrir og bar bara meiri sólarvörn á skallann á mér.

Slæm samheldni

Umræður um nýja eigendur Hitaveitu Suðurnesja hafa kallað fram ólíkt pólitískt tungutak. Hugtakið einkavæðing er helsta bitbeinið. Í ljósi þess að hér er að stærstum hluta til um einokunarrekstur að ræða er eðlilegt að spurningarmerki séu sett um einkavæðingu.

Strengir

Einmitt þegar hver réttlát sál hugsar vart um annað en þorskkvóta og kolefnisjöfnun get ég varla vikið Glitni úr huga mér. Daglega og oft á dag verður mér hugsað til þeirrar ágætu stofnunar.

Ritstjórinn og barrtrén

Hjörleifur Guttormsson skrifar

Þorsteinn Pálsson ritstjóri Fréttablaðsins birti leiðara í blaðinu 16. júlí síðastliðinn undir yfirskriftinni Flórufasismi. Í greininni reiðir ritstjórinn hátt til höggs gegn þeirri stefnu Þingvallanefndar að takmarka á Þingvöllum útbreiðslu barrtrjáa sem þar var plantað á öldinni sem leið.

Að verja vondan málstað

Fjölmiðlar hafa að undanförnu greint frá könnunum ASÍ á þróun matarverðs í helstu verslanakeðjum landsins. Kannanirnar hafa sýnt að á tímabilinu frá því í desember 2006 til maí 2007 lækkaði verðið um 4,2 til 6,7% í lágvöruverðsverslunum og 1,6 til 6,4% í öðrum verslanakeðjum.

Sjá næstu 50 greinar