Viðskipti innlent

Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins

Birgir Olgeirsson skrifar
Hótelið átti upphaflega að opna árið 2020 en opnun hefur ítrekað verið frestað.
Hótelið átti upphaflega að opna árið 2020 en opnun hefur ítrekað verið frestað. Vísir/Anton Brink

Arion banki segir unnið að lausn vegna hótelverkefnisins við Skúlagötu í Reykjavík eftir að framkvæmdir voru stöðvaðar fyrr í vikunni. Félagið sem á bygginguna skuldaði rúma tíu milljarða króna um síðustu áramót.

Haraldur Guðni Eiðsson hjá Arion banka staðfestir í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis að bankinn sé veðhafi í verkefninu.

„Líkt og fram kemur í opinberum gögnum er Arion banki veðhafi í verkefninu. Við getum ekki tjáð okkur um einstök mál en getum þó staðfest að málið er í viðeigandi farvegi og unnið er að lausn þess.“

Verktökum gert að yfirgefa svæðið

RÚV greindi frá því í gær að verktökum við byggingu hótelturnsins hefði verið gert að yfirgefa byggingarsvæðið á mánudaginn, 2. nóvember, og því lokað. Samkvæmt heimildum miðilsins fengu verktakarnir þau svör að viðskiptabanki Rauðsvíkur hefði lokað fyrir frekari fjármögnun verkefnisins.

Arion banki er veðhafi í verkefninu og segir unnið að lausn eftir að framkvæmdir voru stöðvaðar fyrr í vikunni.Vísir/Anton Brink

RÚV greindi jafnframt frá því að vatnstjón hefði valdið töluverðum skemmdum á nær fullbúnum herbergiseiningum fyrr á árinu. Samkvæmt umfjölluninni stendur Rauðsvík að framkvæmdunum og Art-verk hefur verið aðalverktaki.

Skuldir jukust um rúma sex milljarða

Hótelbyggingin er í eigu S26 Hotel. Samkvæmt ársreikningi félagsins fyrir 2025 var byggingin bókfærð á 9,23 milljarða króna í árslok.Ári áður var bókfært verð hennar 4,06 milljarðar.

Byggingarkostnaður, lóðar- og byggingarréttindi og fjármagnskostnaður eru þar talin með, samkvæmt skýringum ársreikningsins.

Í sautján hæða turninum við Skúlagötu er gert ráð fyrir 211 hótelherbergjum og útsýnisbar á efstu hæð.Vísir/Anton Brink

Heildarskuldir S26 Hotel námu 10,03 milljörðum króna í árslok 2025, samanborið við 3,83 milljarða ári áður. Þar af voru skuldir við lánastofnanir 9,11 milljarðar.

Samkvæmt ársreikningi Landvíkur fyrir 2025 voru S26 Hotel, Rauðsvík og Art-verk öll í fullri eigu Landvíkur í lok ársins.

Átti að opna árið 2020

Radisson-samstæðan kynnti hótelverkefnið í tilkynningu í apríl 2018, sem birt var á Hotel Online. Þar var boðuð opnun sautján hæða Radisson RED-hótels á öðrum ársfjórðungi 2020. Þá var gert ráð fyrir 195 herbergjum.

Fjallað var um verkefnið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Samkvæmt umfjöllun Morgunblaðsins hófst niðurrif eldri bygginga á lóðinni árið 2018. Verkefnið var síðar sett á ís vegna kórónuveirufaraldursins árin 2020 og 2021.

Í umfjöllun Morgunblaðsins frá mars 2024 var stefnt að opnun vorið 2025.

Nú kynnt með 211 herbergjum

Á vef Radisson er hótelið nú kynnt sem sautján hæða bygging með 211 herbergjum, veitingastað, fundaraðstöðu og útsýnisbar á efstu hæð. Miðað við tvo gesti í hverju herbergi væri þar gistirými fyrir rúmlega 400 manns.

Á vefnum kemur fram að hótelið sé væntanlegt en taki enn ekki við bókunum.


Tengdar fréttir

Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi

Uppbygging sautján hæða hótelturns Radisson Red við Skúlagötu er sögð í uppnámi eftir að verktakar voru óvænt sendir heim í gær og byggingarsvæðinu lokað. Banki er sagður hafa lokað fyrir greiðslur til framkvæmdafyrirtækisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×