Viðskipti innlent

Matorka í Grinda­vík gjald­þrota

Árni Sæberg skrifar
Um 80 tonn af bleikju töpuðust í skjálftunum í nóvember 2023, vatnsflæði í áframeldinu fór úr skorðum og stórir eldistankar skemmdust. Nú er félagið gjaldþrota.
Um 80 tonn af bleikju töpuðust í skjálftunum í nóvember 2023, vatnsflæði í áframeldinu fór úr skorðum og stórir eldistankar skemmdust. Nú er félagið gjaldþrota. Matorka

Landeldisfyrirtækið Matorka í Grindavík hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Félagið gekk í gegnum mikla erfiðleika vegna jarðhræringa í bænum og fékk samþykkta greiðslustöðvun árið 2024, til þess að freista þess að bjarga rekstrinum. 

Í auglýsingu í Lögbirtingablaði dagsins segir að bú Matorku ehf. hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta þann 2. nóvember með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness.

Frestdagur við gjaldþrotaskiptin sé 30. október síðastliðinn og skiptastjóri skori á alla þá, sem telja til skulda eða annarra réttinda á hendur búinu eða eigna í umráðum þess, að lýsa kröfum sínum fyrir skiptastjóra í búinu innan tveggja mánaða frá birtingu innköllunarinnar.

Matorka tilkynnti í september árið 2024 að félagið hefði fengið samþykkta beiðni greiðslustöðvun, til þess að tryggja sanngirni gagnvart öllum kröfuhöfum í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins.

„Matorka, sem rekur viðamikið landeldi á bleikju nálægt Grindavík, hefur orðið fyrir verulegum áhrifum vegna jarðskjálfta á svæðinu, en um 80 tonn af bleikju töpuðust í skjálftunum í nóvember 2023, vatnsflæði í áframeldinu fór úr skorðum og stórir eldistankar skemmdust. Heildarmagn bleikju hjá fyrirtækinu er nú um 450 tonn. Rýmingar, endurtekið rafmagnsleysi og flutningur starfsfólks sem bjó í Grindavík hefur einnig haft neikvæð áhrif. Þá hefur fyrirtækið þurft að flytja vinnslu sína til Hafnarfjarðar fyrir sölu og útflutning,“ sagði í tilkynningu.

Til að koma fyrirtækinu í gegnum þennan skafl hefðu hluthafar fyrirtækisins lagt verulegt fé í reksturinn og birgjar þess sem og lánveitendur hefðu sýnt aðstæðum mikinn skilning.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×