Framúrskarandi fyrirtæki

Bjarni Bene­dikts­son: „Eftir­sóknar­vert að vera í þessum hópi“

Starri Freyr Jónsson skrifar
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, var heiðursgestur þegar Creditinfo veitti framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu í Hörpu miðvikudaginn 28. október.
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, var heiðursgestur þegar Creditinfo veitti framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu í Hörpu miðvikudaginn 28. október. Mynd/Sigurjón Ólason.

„Það sem ég kann að meta við þessa viðurkenningu er að það dugar ekki að skila góðum hagnaði í eitt ár,“ segir Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sem var heiðursgestur þegar Creditinfo veitti framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu í Hörpu miðvikudaginn 28. október. Tæplega 1.220 fyrirtæki komust á listann í ár, samanborið við 1.155 á síðasta ári.

Bjarni segir styrk viðurkenningarinnar felast í því að horft sé til árangurs yfir tíma. Fyrirtækin þurfi að sýna fram á traustan rekstur, byggja upp eiginfjárstöðu og skila ársreikningum á réttum tíma. Í ár sé jafnframt horft til þess að fyrirtæki sem falla undir lög um kynjahlutföll í stjórnum uppfylli þau.

„Að vera framúrskarandi fyrirtæki segir að þú hafir verið að taka góðar ákvarðanir, margar góðar ákvarðanir, ítrekað yfir langan tíma.“

Þannig geti fyrirtækin eflt traust á atvinnulífinu í heild og sýnt að þau séu traustsins verð, bæði í viðskiptum og sem vinnustaðir.

Verðmætin þurfa fyrst að verða til

Úr framkvæmdastjórastóli Samtaka atvinnulífsins segist Bjarni horfa á sömu viðfangsefni og áður úr ráðherrastóli, en úr annarri átt. Samkeppnishæfni atvinnulífsins sé nú ofarlega á baugi. Sterk króna, há launahlutföll, verðbólga og háir vextir geri fyrirtækjum erfitt fyrir.

„Nú erum við því mjög upptekin af samkeppnishæfninni, hvernig við getum viðhaldið okkar styrk, fundið leiðir að efnahagslegum stöðugleika að nýju og svo vaxið þaðan.“

Bjarni lýsir áhyggjum af litlum hagvexti undanfarin þrjú ár og segir vaxtakostnað íþyngjandi fyrir fyrirtæki. Þá séu skattar að hækka, meðal annars sértækir skattar á einstakar atvinnugreinar. Að hans mati þurfi aukin verðmætasköpun að vera í forgrunni.

„Það er ekki hægt að skammta sér tekjur frá fyrirtækjunum í landinu bara með nýjum sköttum.“

Hann segir mikilvægt að minna á forsendur þess að hægt sé að skipta verðmætunum. „Ef verðmætin verða ekki sköpuð, þá er tómt mál að tala um hvernig eigi að skipta þeim.“

Árangur er ekki sjálfgefinn

Spurður um hvað helst standi í vegi fyrir góðum árangri segir Bjarni ytri skilyrði fyrirtækja skipta miklu. Fyrirsjáanleiki í regluverki, samkeppnishæfir skattar og gjöld og launaþróun í takti við verðmætasköpun séu þar lykilatriði.

„Við þurfum líka að finna fyrir stuðningi frá stjórnvöldum og að það sé viðurkennt að í atvinnulífinu verði verðmætin til sem eru í raun og veru grundvöllur velferðarinnar í landinu.“

Hann segir Íslendingum hafa gengið vel að nýta tækifæri sín, en áframhaldandi árangur sé ekki sjálfgefinn. Hann telur samkeppnishæfni nú fara dvínandi, meðal annars í ferðaþjónustu, og kallar eftir samstöðu um aukna verðmætasköpun.

Viðurkenning Creditinfo sé um leið mikilvæg hvatning fyrir fyrirtæki og góð þátttaka á hátíðinni sýni að forsvarsmenn þeirra kunni að meta framtakið. Bjarni vonast til að enn fleiri taki við viðurkenningu á næsta ári. „Þessi mikla þátttaka sem birtist hér í dag er til vitnis um að fólk kann að meta þetta framtak og að það sé eftirsóknarvert að vera í þessum hópi.“


Þessi grein er hluti af samstarfi Sýnar og Creditinfo um Framúrskarandi fyrirtæki.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×