Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Aron Guðmundsson skrifar 3. nóvember 2026 21:54 Cunha skoraði tvö af þremur mörkum Manchester United í kvöld en var svo rekinn af velli undir lok leiks. Vísir/Getty Matheus Cunha reyndist hetja Manchester United í gífurlega mikilvægum endurkomusigri liðsins gegn Roma í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Tilfinningarússíbani á Old Tafford. Lokatölur 3-2 sigur Manchester United. Verður þetta sigur sem snýr við gengi liðsins? Rauðu djöflarnir lentu tveimur mörkum undir í fyrri hálfleik eftir mörk sem Matías Soulé og Donny Malen skoruðu fyrir Roma. Eftir seinna markið fengu stuðningsmenn Manchester United, sem höfðu mótmælt stöðunni hjá félaginu fyrir leik, nóg og hentu tennisboltum inn á völlinn í mótmælaskyni. Leikar stóðu 2-0 fyrir Roma í hálfleik en heimamenn mættu öflugri til leiks í seinni hálfleik. Bruno Fernandes minnkaði muninn fyrir Manchester United með marki úr vítaspyrnu á 58.mínútu. Skömmu seinna var Bryan Mbeumo nálægt því að jafna metin en skot hans fór í stöngina og þaðan í hina stöngina og svo frá markinu. Heimamenn settu mikla pressu á Roma og það skilaði jöfnunarmarki á 83. mínútu þegar að Matheus Cunha nýtti sér mistök í vörn Roma og jafnaði metin. Cunha var ekki hættur. Skömmu eftir jöfnunarmarkið var hann aftur á ferðinni og kom Manchester United yfir með frábæru marki. Þrumufleygur sem Devis Vásquez réði ekki við í marki Roma. Cunha lét síðan reka sig af velli undir lok leiks er hann fór í tæklingu á gulu spjaldi og fékk að líta sitt seinna gula spjald. Staðan orðin 3-2 Manchester United í vil og þar við sat. Gífurlega mikilvægur endurkomusigur Manchester United. Miklu stærri en bara þrjú stig í Meistaradeildinni. Þungu fargi létt af þjálfara liðsins Michael Carrick, sem hefur verið undir mikilli pressu, sem og leikmönnum liðsins. Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Manchester United