Börsungar léku sér að Aston Villa Aron Guðmundsson skrifar 3. nóvember 2026 21:58 Lamine Yamal og Gabriel Jesus fagna hér einu mark Barcelona á leiktíðinni. Getty/David Ramos Barcelona átti ekki í vandræðum með enska úrvalsdeildarfélagið Aston Villa þegar liðin mættust á Nývangi í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Lokatölur urðu 3-0 Barcelona í vil. Það varð fljótt ljóst í hvað stefndi í leik kvöldsins. Lamine Yamal kom Barcelona yfir strax á 7. mínútu leiksins. Reyndist það eina mark fyrri hálfleiksins en á fyrri helmingi seinni hálfleiks sá tvenna frá Raphinha til þess að Börsungar fóru að lokum með 3-0 sigur af hólmi. Með því tyllir liðið sér í 2. sæti deildarinnar og er þar með níu stig, líkt og Aston Villa sem vermir þriðja sætið. Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Aston Villa FC FC Barcelona