Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar 3. nóvember 2026 14:02 Margt hefur verið skrifað og sagt síðan föstudaginn fyrir rúmri viku síðan þegar kynnt voru áform um talsverðar breytingar á því kerfi sem alla jafna kallast Loftbrú. Margt í þeirri umræðu hefur verið gagnlegt, annað síður. Það hefur til dæmis bætt umræðuna að rýna í áhrif kerfisins á þróun miðaverðs í innanlandsflugi og áhrif þess að hverfa frá hlutfallslegum afslætti og yfir í fasta krónutölu, og hverjir koma þar best út og hverjir verða verst úti. Aftur á móti hjálpar það lítt að kasta fram gífuryrðum um aðför gegn landsbyggðinni eða „enn einn landsbyggðarskattinn“. Við þurfum frekar að halda til haga kjarna málsins. Loftbrúin er fyrst og fremst jöfnunartæki. Hún dregur úr þeim aðstöðumun sem fólk utan stórhöfuðborgarsvæðisins býr við þegar kemur að aðgengi að miðlægri stjórnsýslu, sérhæfðri þjónustu, verslun og menningu sem aðeins er að finna á suðvesturhorni landsins. Fulltrúum Samfylkingarinnar - Jafnaðarflokks Íslands, hvort sem þeir sitja á stóli ráðherra, á þingi eða í sveitastjórnum vítt og breytt um landið, er hér um bil skylt að hafa sjónarmið jöfnuðar að leiðarljósi við alla ákvarðanatöku. Byggðajöfnuður er þar engin undantekning, enda er það eitt af leiðarljósi okkar jafnaðarfólks að tryggja öllum landsmönnum jafnt og sanngjarnt aðgengi að þjónustu og gæðum hins opinbera, beint og óbeint. Nýverið boðaði innviðaráðherra að breytingar yrðu gerðar á Loftbrú þannig að tekin yrði upp föst krónutala í stað 40% hlutfallslegs afsláttar af fargjöldum. Sem rök fyrir breytingunni hefur verið bent á að framlög ríkisins til verkefnisins hafi á undanförnum árum ítrekað farið fram úr fjárheimildum. Það er skiljanlegt sjónarmið og rík ástæða til að staldra við og endurhugsa kerfið. Fljótt í kjölfar tilkynningu ráðherra var síðan tilkynnt um aukin framlög til verkefnisins, sem þá gerir að verkum að verkefnið rúmast innan fjárheimilda. Það er mikið fagnaðarefni, og ber að hrósa fyrir, enda hefur þessi tala staðið í stað frá upphafi og er núverandi ríkisstjórn þá að boða fyrstu innspýtingu í kerfið frá því það var tekið upp. En þá á sama tíma er erfitt í reynd að sjá að þörf á því að gera þessa breytingu úr 40% hlutfallslega aflsættinum, yfir í föstu krónutöluna, sé enn til staðar. Eins og Þóroddur Bjarnason hefur réttilega bent á, getur þessi útfærsla með föstum krónutölu afslætti reynst varasöm. Slíkt fyrirkomulag getur rýrnað hratt í verðbólgu, jafnvel þó hún sé lág, en fyrst og síðast verndar það íbúa landsbyggðarinnar ekki gegn verðlagningu á fargjöldum í innanlandsflugi þegar ferðast þarf með skömmum fyrirvara, t.d. vegna óvæntra atburða. Og þar liggur sennilega mergur málsins. Ég tek heilshugar undir með Þóróddi, enda hefur hann sýnt fram á með málefnalegum, hlutlægum og yfirveguðum hætti, þær hættur sem fólgnar geta verið í því kerfi sem innviðaráðherra vill horfa til. Loftbrúin er eitt allra mikilvægasta tækið sem til er til að tryggja byggðajöfnuð í landinu. Hún er það tæki sem er einna best til þess fallið að jafna og auka aðgengi landsbyggðarinnar að þjónustu, menningu, stjórnsýslu og verslun á höfuðborgarsvæðinu. Það má með engu móti hrófla við henni nema að betra og tryggara kerfi komi í staðinn. Hugmyndir um fastan krónutöluafslátt eru einfaldlega ekki til þess fallnar að bæta kerfið fyrir þá sem það nota, sama hvernig á það er litið. Ég hvet innviðaráðherra eindregið til að fara aftur að teikniborðinu og leggja fram nýjar tillögur um breytingar sem bæta kerfið. Að öðrum kosti erum við notendur betur staddir með óbreytt fyrirkomulag. Höfundur er bæjarfulltrúi og oddviti Samfylkingarinnar á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sindri S. Kristjánsson Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun