Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Samúel Karl Ólason skrifar 2. nóvember 2026 18:49 Hörður Arnarson, fyrrverandi forstjóri Landsvirkjunar. Vísir/Ívar Fannar Stjórn Landsvirkjunar segir að skoðun óháðra aðila á athugasemdum Harðar Arnarsonar, fyrrverandi forstjóra, um stjórnarhætti hafi leitt í ljós að stjórnin hafi ekki farið út fyrir lögbundið hlutverk sitt eða heimildir. Þá hafi Herði ekki verið haldið frá umræðu um rekstur félagsins og stjórnin hafi ekki skipt sér af daglegum rekstri Landsvirkjunar.
Breytt vinnubrögð vegna nýrra reglna hafi skapað núning milli forstjóra og stjórnar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í yfirlýsingu stjórnarinnar um starfslok Harðar og aðdraganda þeirra. Sagt var frá því í byrjun október að Hörður væri að láta af störfum og hefur það verið rakið til þess að hann hafi verið ósáttur við starfshætti stjórnar ríkisfyrirtækisins. Í yfirlýsingunni segir að Hörður hafi í júní sent minnisblað til stjórnarinnar þar sem hann hafi lagt fram athugasemdir við stjórnarhætti. Þær athugasemdir hafi verið teknar alvarlega, farið hafi verið yfir þau tilvik sem Hörður nefndi sérstaklega og mun stjórnin hafa leitað til óháðra lögfræðinga og fengið álit þeirra. Þar að auki hafi stjórnin haft til hliðsjónar annað lögfræðiálit sem Hörður aflaði. Stjórnin segir niðurstöðu þessa hafa verið skýra. „Niðurstaðan er skýr: Yfirferð málsins hefur ekki leitt í ljós að stjórn Landsvirkjunar hafi farið út fyrir lögbundið hlutverk sitt eða heimildir. Ágreiningur hefur hins vegar verið um vinnubrögð og túlkun á hlutverkum stjórnar, stjórnarformanns og forstjóra.“ Nýar reglur + breytt vinnubrögð = núningur Stjórnin ítrekar að samskipti Landsvirkjunar við fjármála- og efnahagsráðuneytið séu á forræði hennar. Frá því stjórnin var mynduð í apríl 2025 hafi níu sinnum verið fundað með starfsmönnum ráðuneytisins og fundargerðir um þá fundi liggi fyrir og þeir hafi að mestu snúist um arðsemi, arðgreiðslur, fjármagnsskipan og störf stjórnar. Hörður eða staðgengill hans hafi setið þá fundi þar sem málefni tengd rekstri Landsvirkjunar hafi verið rædd. Stjórnin sem nú situr er sú fyrsta sem er skipuð samkvæmt nýjum reglum um val í stjórnir stærri ríkisfyrirtækja. Í yfirlýsingunni segir að áhersla hafi verið lögð á skýra verkaskiptingu, góða stjórnarhætti og annað, sem hafi í einhverjum tilvikum kallað á breytt vinnubrögð. Það hafi skapað núning milli forstjóra og stjórnar. „Stjórnarmenn eru sjálfstæðir í störfum sínum og einhuga í afstöðu sinni til þeirra athugasemda sem komið hafa fram. Fundargerðir staðfesta að ríkið hefur á engan hátt haft óeðlileg áhrif á stjórnun félagsins. Ákvarðanir stjórnar eru teknar á stjórnarfundum, á viðskiptalegum forsendum og með hagsmuni Landsvirkjunar að leiðarljósi.“ Segjast engin afskipti hafa haft Í yfirlýsingunni segir einnig að Herði hafi ekki verið haldið frá umræðu um rekstur félagsins. Á því eina og hálfa ári síðan stjórnin var skipuð hafi tvisvar sinnum verið fundað án hans, þegar fjallað var um athugasemdir hans við störf stjórnarinnar. Hann hafi vikið af tveimur öðrum fundum sem vörðuðu hann sjálfan, eins og við eigi í slíkum tilfellum. „Stjórn hefur lögbundið hlutverk um eftirlit með störfum forstjóra. Til að sinna því hlutverki er eðlilegt að hún ræði þau mál án hans viðveru.“ Þá segir stjórnin að ekki hafi verið höfð afskipti af daglegum rekstri Landsvirkjunar. Í fáum tilfellum þar sem hún var í samskiptum við ytri aðila eða starfsfólk, hafi það verið gert í samráði við Hörð og með samþykki hans. Í yfirlýsingunni segir enn fremur að stjórnin hafi orðið við ósk Harðar um starfslok. Landsvirkjun hafi notið þekkingar hans og reynslu um árabil og árangur félagsins á þeim tíma tali sínu máli. „Landsvirkjun er ein verðmætasta eign þjóðarinnar og eðlilegt að fólk hafi skoðanir á málefnum fyrirtækisins. Engar ákvarðanir eru hafnar yfir gagnrýni og sjálfsagt að ræða vinnubrögð á málefnalegan hátt. Það er hins vegar ekki rétt að halda því fram að vikið hafi verið frá lögum eða góðum stjórnarháttum. Slíkar fullyrðingar samrýmast ekki gögnum málsins og því telur stjórnin rétt að leiðrétta þær. Hún mun áfram vera sjálfstæð í störfum sínum og starfa af fagmennsku með langtímahagsmuni Landsvirkjunar og samfélagsins að leiðarljósi.“
Landsvirkjun Starfslok Harðar Arnarsonar hjá Landsvirkjun Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira