Breytt mat lífeyrisskulda getur þýtt stórfelldar sveiflur á eiginfjárstöðu ríkisins
Breytt aðferðafræði við mat á lífeyrisskuldbindingum ríkissjóðs þýðir að sveiflur í ávöxtunarkröfu ríkisskuldabréfa geta framvegis haft veruleg áhrif á bókfærðar skuldir og eigið fé ríkisins milli ára, jafnvel svo nemi yfir hundrað milljörðum króna, án þess að undirliggjandi lífeyrisréttindi eða greiðsluskuldbindingar hafi breyst. Þannig gæti staða ríkissjóðs samkvæmt efnahagsreikningi versnað umtalsvert á sama tíma og fjármögnunarskilyrði hans fara batnandi.
Tengdar fréttir
Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða
Afkoma heildarsamstæðu ríkisins síðasta árs var neikvæð um 182 milljarða króna. Tekjur námu 1507 milljörðum og rekstrargjöld 1646 milljörðum.