Hlaut heilahristing og er enn með hausverk en aganefnd gaf grænt ljós Sindri Sverrisson skrifar 1. nóvember 2026 08:45 Feðgarnir Gabriel og Egill glaðbeittir við svellið. Egill segir íshokkí fallega íþrótt en hana þurfi að vera hægt að stunda í fyrirsjáanlegu öryggi og það sé ekki staðan þegar brot sem valdi heilahristingi séu látin átölulaus. Samsett Faðir sextán ára leikmanns Fjölnis í íshokkí harmar að leikmaður SR skuli sleppa án refsingar eftir brot sem meðal annars olli syni hans heilahristingi og doða í fingrum vinstri handar. Sonur hans lá meðvitundarlaus á svellinu og segir faðirinn myndband sýna að um tæklingu í höfuð sé að ræða. Málið snýst um brot Slóvakans Eduard Kasca, sem leikið hefur með SR síðustu tvö tímabil, á Gabriel Egilssyni leikmanni Fjölnis í leik í Toppdeildinni fyrir viku. Brotið má sjá í myndbandinu hér að neðan. Klippa: Háskalegt brot í leik SR og Fjölnis Egill Egilsson, faðir Gabriels, skrifaði pistil um málið á Facebook en honum blöskrar sú niðurstaða aganefndar Íshokkísambands Íslands að ekkert skuli aðhafst frekar í málinu. Egill segir son sinn hafa misst meðvitund í nokkrar sekúndur, hlotið heilahristing og sé enn í dag með mikinn hausverk. Fylgst sé náið með líðan hans en öll taugaboð séu þó í lagi. Egill segir Kascak ekki hafa sýnt neina iðrun vegna tæklingarinnar, hvorki í leiknum sjálfum á meðan hinn 16 ára Gabriel lá á svellinu né enn í dag þegar vika sé liðin frá leiknum. Aganefnd er ósammála mati dómara leiksins um að um ákeyrslu á höfuð og háls hafi verið að ræða hjá Kascak. Úr úrskurði aganefndar ÍHÍ: Leikmaður Fjölnis númer 92 er að beygja út úr sínu eigin varnarsvæði til að fylgja eftir skyndisókn (turnover)Leikmaður SR númer 14 kemur á rennsli (glide) inn í varnarsvæðið og tæklar leikmann Fjölnis. Dómari leiksins mat ákreyrsluna sem ákeyrslu á höfuð og háls og gaf leikmanni SR númer 14, 5 mínútna dóm í samræmi við reglu 48,3 ásamt brottvísun úr leiknum. Við nákvæma greiningu á beinu streymi atviksins hjá aganefnd er ekki að sjá að leikmaður SR númer 14 beini tæklingu að háls eða höfði leikmanns Fjölnis. Leikmaður SR tekur ekki eitt skautaskref eftir að hann kemur inn í myndrammann sem er vel fyrir utan bláu línu. Leikmaðurinn liftir ekki hendi og engin merki eru um að höfuð leikmanns Fjölnis kastist til vegna ákeyrslunnar. Hreyfing á höfði er oftast fyrsta vísbending um að tæklingu hafi verið beint að hálsi eða höfði. Hinsvegar sést vel í svona ramma greiningu, að leikmaðurinn fellur afturábak við höggið og hnakki hans skellur í svellið. Egill botnar ekkert í þessari niðurstöðu aganefndar. „Ég var sjálfur viðstaddur á leiknum og fyrir mér var ekki vafi á því að Eduard Kascak tæklaði Gabriel í höfuðið,“ skrifar Egill sem bendir á að reglur um bann við tæklingu í höfuð og háls séu settar til að vernda líf og heilsu leikmanna. Blási upp bringuna og beini öxl að Gabriel „Við skoðun myndbandsupptöku af leiknum sést hvernig Eduard Kascak skautar frá pökknum gagnstætt flæði leiksins en heldur áfram í átt að Gabriel sem fylgir leikflæðinu. Eðlilegt er að leikmaður í stöðu Eduards myndi beygja til hægri og elta pökkinn. Hann hins vegar kýs að fara í Gabriel og stöðva hann. Rétt áður en árekstur verður blæs Eduard upp bringu og beinir öxl sinni að Gabriel. Í myndbandinu er að sjá að öxlin lendir á höku Gabriels enda var hann með blæðandi sár eftir tæklinguna,“ skrifar Egill. Egill segir hart tekið á svona brotum á öðrum Norðurlöndum og harmar að aganefnd ÍHÍ taki „afstöðu með ringulreið og ruddaskap“ „Aganefndin telur upp í sinni röksemdarfærslu atriði sem eru algerlega óviðkomandi því hvort um höfuðhögg hafi verið að ræða. Það eina sem nefndin lítur til er hvort höfuð Gabriels kastist til við áreksturinn. Það væri gilt sjónarmið ef tæklingin væri lóðrétt eða undir höfði. Hægri öxl Eduards lendir á höku sem leiðir til ofsnúnings á hálslið Gabriels,“ skrifar Egill. „Því miður tók Aganefnd ÍHÍ afstöðu með ringulreið og ruddaskap“ „Af lestri úrskurðarins má álykta að málið virðist hafa fengið meðferð sem einkennist af hlutdrægni, ófaglegum vinnubrögðum og fyrir fram ákveðnum farvegi. Lýsandi leiks í beinu streymi er jafnframt formaður ÍHÍ en hann heyrist segja að leikmennirnir hafi einfaldlega rekist saman. Úrskurði Aganefndarinnar er ekki hægt að áfrýja. Þetta atvik og meðferð þess er íshokkííþróttinni hér á landi ekki til sóma. Á Norðurlöndum er hart tekið á svona brotum og brotlegir leikmenn geta átt von á löngu leikbanni. Stefnan hér á Íslandi virðist hins vegar vera sú að gerandinn fái að njóta vafans. Það sem eftir stendur er algert ósamræmi í stefnu sambandsins í að fyrirbyggja höfuðáverka. Hér var kjörið tækifæri til að taka skýra afstöðu gegn slíkum brotum. Það sem veldur mér mestum áhyggjum er að það er ekki nokkur leið til þess að verjast slíkri tæklingu. Svona brot eru eins og elding úr heiðskíru lofti. Eduard Kascak sést ekki líta til baka til þess að athuga með líðan Gabriels sem lá meðvitundarlaus á ísnum. Gabriel er 16 ára. Skeytingarleysi hans undirstrikast enn fremur með því að hann hefur ekki enn beðist afsökunar á þessu atviki. Þess má geta að Eduard sinnir þjálfun hjá barna- og unglingaliðum Skautafélags Reykjavíkur. Af framangreindu efast ég stórlega um hæfi og heilindi þessa manns til þess að sinna slíkum störfum. Íshokkí er fallegt sport þar sem heilt litróf íþróttaiðkunar fær að skína, allt frá grófum krafti til tærrar fimni. Til þess að geta stundað þessa íþrótt í fyrirsjáanlegu öryggi þurfa reglur og útfærsla þeirra að vera skýrar. Dómarar í þessum leik dæmdu rétt en því miður tók Aganefnd ÍHÍ afstöðu með ringulreið og ruddaskap,“ skrifar Egill. Íshokkí Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Hlaut heilahristing og er enn með hausverk en aganefnd gaf grænt ljós Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Hlaut heilahristing og er enn með hausverk en aganefnd gaf grænt ljós Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun „Sóknarleikurinn vel smurður“ Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Sjá meira
Úr úrskurði aganefndar ÍHÍ: Leikmaður Fjölnis númer 92 er að beygja út úr sínu eigin varnarsvæði til að fylgja eftir skyndisókn (turnover)Leikmaður SR númer 14 kemur á rennsli (glide) inn í varnarsvæðið og tæklar leikmann Fjölnis. Dómari leiksins mat ákreyrsluna sem ákeyrslu á höfuð og háls og gaf leikmanni SR númer 14, 5 mínútna dóm í samræmi við reglu 48,3 ásamt brottvísun úr leiknum. Við nákvæma greiningu á beinu streymi atviksins hjá aganefnd er ekki að sjá að leikmaður SR númer 14 beini tæklingu að háls eða höfði leikmanns Fjölnis. Leikmaður SR tekur ekki eitt skautaskref eftir að hann kemur inn í myndrammann sem er vel fyrir utan bláu línu. Leikmaðurinn liftir ekki hendi og engin merki eru um að höfuð leikmanns Fjölnis kastist til vegna ákeyrslunnar. Hreyfing á höfði er oftast fyrsta vísbending um að tæklingu hafi verið beint að hálsi eða höfði. Hinsvegar sést vel í svona ramma greiningu, að leikmaðurinn fellur afturábak við höggið og hnakki hans skellur í svellið.
Íshokkí Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Hlaut heilahristing og er enn með hausverk en aganefnd gaf grænt ljós Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Hlaut heilahristing og er enn með hausverk en aganefnd gaf grænt ljós Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun „Sóknarleikurinn vel smurður“ Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Sjá meira