Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Rakel Sveinsdóttir skrifar 30. október 2026 07:02 Það bendir margt til þess að við séum skammt á veg kominn með gervigreindina segir dr. Huginn Freyr Þorsteinsson, ráðgjafi og einn eigenda Aton. Sem rifjar upp hvernig fyrri tíma byltingar tóku líka tíma í að móta nýjar leikreglur og fyrir fólk að venjast. Vísir/Anton Brink „Það er margt sem bendir til þess að við séum enn skammt á veg komin, þótt okkur finnist hraðinn mjög mikill,“ segir dr. Huginn Freyr Þorsteinsson, ráðgjafi og einn eigenda Aton, en Huginn var einn höfunda skýrslu um fjórðu iðnbyltinguna sem unnin var fyrir íslensk stjórnvöld árið 2019.
Í skýrslunni kom fram sú spá að gervigreindin yrði kjarni byltingarinnar sem fram undan væri. Í fyrri byltingum var hægt að sjálfvirknivæða líkamleg störf, störf þar sem við þurftum að nota skrokkinn til að færa til hluti eða hreyfa þá. Í skýrslunni vorum við hins vegar að boða að gervigreindin færi að leysa af hólmi margt af því sem við notum kollinn okkar í dag.“ Á þessum tíma voru samt fáir farnir að velta þessu fyrir sér. Huginn flutti fjölda erinda um efni skýrslunnar en segir viðbrögðin oft hafa verið á einn veg. Því fólk var eiginlega ekkert að kveikja á þessu fyrirbæri: gervigreindinni. „Mörgu fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni,“ segir Huginn þegar hann rifjar upp fjöldann allan af erindum sem hann hélt fyrir fólk og fyrirtæki í kjölfar útgáfu skýrslunnar. Í Atvinnulífinu í gær og í dag er því velt upp hvort íslensk fyrirtæki séu nógu undirbúin undir gervigreindina. Manstu þetta? Huginn hefur góða yfirsýn yfir fyrri byltingar, rétt eins og þá sem nú gengur yfir. Við byrjum því á að fá hann til að setja þessa fjórðu iðnbyltingu – þróun gervigreindarinnar – í samhengi við fyrri byltingar. Svo gagnlegt stundum að horfa á stóru myndina. Huginn byrjar á því að rifja upp þegar bílarnir komu: Þegar þeir komu til sögunnar í borgum var mikill ótti við þá, enda var fólk sífellt að verða fyrir bílum og slasast illa. Fólki fannst þetta rosaleg tækni: Hvað er að gerast hérna, allt í einu eru allir að þeysast á bílum út um allt? Það tók auðvitað tíma að setja umferðarreglur og viðmið sem náðu utan um þessa tækni.“ Annað dæmi sem Huginn nefnir er byltingin sem fylgdi prentvélunum. Því í kjölfar þeirra þurfti að setja nýjar leikreglur og móta til dæmis reglur um höfundarrétt. Þá nefnir Huginn togarana. „Þegar togararnir komu í staðinn fyrir að menn reru á árabátum þurfti að koma vökulögunum svokölluðu í gegnum Alþingi,“ segir Huginn og vísar þar með í lög um hvíldartíma sjómanna. „Vökulög voru óþörf á opnum árabátum sem fóru út yfir daginn. En á togurunum var hægt að láta menn vinna sólarhringum saman án hvíldar og þá þurfti lagalega umgjörð.“ Huginn segir að sama hvar okkur beri niður sé staðreyndin alltaf þessi: Stórar tækninýjungar búi alltaf til alls kyns verkefni fyrir samfélagið. Og það sé eðlilegt að það taki samfélög tíma að ná utan um þær. Stundum hafi það meira að segja tekið áratugi. Sumsé: Þótt hraðinn sé mikill í þróun gervigreindar er í raun alveg eðlilegt að það taki smá tíma fyrir samfélög að móta reglurnar í kringum þessa nýju tækni. Það er ekkert einsdæmi að vita ekki alveg hvaða leikreglur eiga að gilda um gervigreindina. Því fyrri byltingar hafa sýnt að oft tekur langan tíma fyrir samfélög að aðlagast og læra á nýjungar. Til dæmis óttuðust margir bíla þegar þeir komu fyrst, höfðu áhyggjur af þessum slysum og það tók tímann sinn að móta umferðarreglur.Vísir/Getty Tækifæri litlu fyrirtækjanna Flest stærri fyrirtæki eru komin eitthvað á veg með mótun stefnu eða innleiðingu gervigreindar í sína starfsemi. Á Íslandi, eins og víðast hvar í Evrópu, eru hins vegar flest fyrirtæki lítil eða meðalstór. Af því tilefni biðjum við Hugin um að taka smá yfirferð á því hvernig hann sér fyrir sér stöðuna fyrir þennan hóp fyrirtækja. Huginn telur afar misjafnt hversu vel undirbúin lítil og meðalstór fyrirtæki eru undir það sem koma skal. Tækifærin séu þó mörg. „Lítil og meðalstór fyrirtæki geta náð miklum árangri í að minnka samkeppnisforskot stærri aðila,“ segir Huginn og tekur verslun sem dæmi. „Það hefur verið dýrt að hasla sér völl í verslunarrekstri. Það þarf alls kyns búnað, sölukerfi og hugbúnað. Dýrar, staðlaðar hugbúnaðarlausnir hafa gagnast stærri aðilum mjög mikið. En með gervigreindinni er hægt að búa til sérsniðnar lausnir fyrir brotabrot af því sem kostaði að hanna hugbúnað áður.“ Vefsíða sé gott dæmi. Áður þurftu fyrirtæki að eyða talsverðum peningum í að koma sér upp vefsíðu, en kostnaðurinn er orðinn miklu minni í dag. App verði áfram dýrt í þróun, en þó aðeins brot af því sem það var. Þá opni tæknin aðgang að þekkingu sem áður var dýr. „Þú getur látið tæknina útvega þér þekkingu sem þú hafðir ekki aðgang að áður, vegna þess að það var dýrt og þú hefðir þurft að fá dýra ráðgjafa til.“ Mörg fyrirtæki óttast þó að viðskiptamódel sem gilt hafa um áratugaskeið muni ekki gilda lengur og velta fyrir sér: Hvað tekur þá við? Tökum dæmi af bókhaldsstofu sem í áratugi hefur selt tíma. Uppgjör sem tók sjö klukkustundir tekur nú kannski tólf mínútur. Hvernig á þá að verðleggja vinnuna? Hrynur veltan eða þarf stofan fimm sinnum fleiri viðskiptavini? Huginn segir kannanir sýna að fólk sé víða farið að nota gervigreind í vinnunni. „Samkvæmt Gallup hafa aðeins yfir 42 prósent verið að nota hana í vinnunni. En það eru kannski bara 14 prósent sem eru með einhverja strategíu varðandi gervigreindina skv. könnun Hagstofunnar. Það þýðir að fólkið í fyrirtækjunum er að prófa sig áfram, en fyrirtækin eru ekki með nægilega mikla strategíu um hvernig eigi að nýta hana.“ Þegar svona stór tæknibreyting verði þurfi fyrirtæki að endurhugsa strategíuna sína: verðstrúktúr, framsetningu á vinnu og hvað sé hægt að vinna. „Kannski tekur eitthvað sem tók sjö klukkustundir bara einn tíma. Þá geturðu hugsað: Get ég bara rukkað fyrir einn tíma? En það eru líka hlutir sem tóku kannski tvo mánuði og manni datt aldrei í hug að gera fyrir kúnnann. Ef það tekur núna viku fer að verða skynsamlegt að gera það, vegna þess að kostnaðurinn hefur lækkað.“ Til að móta slíka strategíu þurfi að skilja tæknina. „Hvers konar gögn þarf ég að hafa fyrir gervigreindina? Hvenær er hún áreiðanleg og hvenær þarf ég að athuga betur það sem frá henni kemur? Hvaða reglur ætla ég að hafa um persónuvernd og þau gögn sem við notum? Þetta er vinnan sem liggur núna hjá eigendum og starfsfólki fyrirtækja. Tæknin er byltingarkennd, fólk er að nota hana mjög mikið og hún er góð á ákveðnum sviðum. Spurningin er: Hvar á hún að styðja við reksturinn?“ En gæti gervigreindin stækkað lítinn markað eins og Ísland? „Það verða alltaf til ný og óvænt tækifæri við svona tæknibreytingar,“ svarar Huginn en bætir við: „Gervigreindin talar íslensku en ný tækifæri ganga í báðar áttir. Nú er tungumálið ekki hamlandi eins og það kannski áður var, sem þýðir að íslensk verslun gæti eignast markhóp erlendis. Á móti kemur að til dæmis ítölsk verslun gæti haslað sér völl með markhóp á Íslandi. Áður stoppaði íslenskan kannski svolítið svona tækifæri.“ Huginn telur mörg tækifæri opnast fyrir smærri og meðalstór fyrirtæki með tilkomu gervigreindarinnar. Því þau geti jafnvel ráðist í verkefni eða fengið aðgengi að þekkingu sem hingað til hafa verið of dýr eða umfangsmikil. Besta fjárfesting stjórnvalda er að horfa til nýsköpunar segir Huginn.Vísir/Anton Brink Besta fjárfestingin Nú er vetur að ganga í garð og kólnun í hagkerfinu. Hvernig metur Huginn stöðuna í íslensku atvinnulífi? „Íslenskt atvinnulíf stendur að mörgu leyti mjög vel. Efnahagslífið er að glíma við verðbólgu og vexti; það er aðalvandinn. Það er gamalkunnur vandi á Íslandi og ekkert tengdur tæknibreytingum,“ segir Huginn. „En ég held að íslensk fyrirtæki myndu gera vel í því að skoða þá margvíslegu kosti sem gervigreindin hefur í för með sér fyrir skipulag og verðmætasköpun. Það vantar svolítið upp á að fyrirtækin hanni sér viðskiptastrategíu í þessu. Þau þurfa að skoða þetta miklu nánar og ekki nálgast þetta sem eitthvert upplýsingatækniverkefni, með fullri virðingu fyrir upplýsingatæknifólki.“ Ástæðan sé einföld: Allir eru að nota tæknina. Fólkið sem er að vinna verkefnin er fljótt að finna hvernig það getur nýtt sér tæknina til að auðvelda sér störfin og jafnvel búa til frekari verðmæti.“ Huginn nefnir dæmi um vinnustaði sem hann þekkir til. Með gervigreind sé hægt að fá öflug gögn til að greina til dæmis opinbera umræðu eða það sem gerist í fjölmiðlum á Íslandi. „Þú þarft alltaf ráðgjafa til að vinna úr greiningunni. En það sem tók langan tíma í gamla daga hefur styst. Það þýðir að þú getur eytt meiri tíma í sjálfa ráðgjöfina sem byggir á greiningunni, sem var alltaf það sem maður hafði minnstan tíma í til að klára fyrir viðskiptavini. Þetta þekkja allir í atvinnulífinu. Þú þarft að hugsa: Hvernig get ég stytt undirbúningstímann minn til að vinna það sem ég er góður í?“ En eru stjórnvöld nógu vel undirbúin fyrir þessar breytingar? „Mér sýnist stjórnvöld vera að reyna eins og þau geta að ná utan um þetta verkefni,“ segir Huginn. „En eins og þetta lítur út eru þetta það miklar tæknibreytingar að það verður höfuðverkur fyrir stjórnvöld að ná utan um alla þræðina.“ Aðalverkefni stjórnvalda sé að vakta hvar veikleikarnir eru í samfélaginu sem tæknin þrýstir á. „Segjum sem svo að einhver hópur sé sérstaklega líklegur til að missa vinnuna eða að starfið breytist það mikið að fólk sé ekki lengur fært um að sinna því. Þá getur verið verkefni fyrir stjórnvöld að styðja við einstaklinga sem lenda í þessu. Þar eru verkefni fyrir símenntun og atvinnuleysisúrræði.“ Líkt og gert var eftir hrun. Huginn leggur þó áherslu á að hann sé ekki að teikna upp dómsdagsspá. „Ég er frekar bjartsýnn maður þegar kemur að tækninni. Ég er bara að segja að hlutverk stjórnvalda er að vakta hvar veikleikarnir eru í samfélaginu okkar sem þessi tækni þrýstir á.“ Hitt verkefnið sé að ýta undir nýsköpun og þekkingaröflun. „Sá tímapunktur sem við erum á núna, þegar tæknin er að koma, mun skilgreina hvernig okkur vegnar næstu áratugi. Ríkið verður að koma mjög myndarlega að þessu,“ segir Huginn og bætir við: Það er einhver besta fjárfesting sem íslenska ríkið gæti gert: Að koma myndarlega að baki nýsköpunarfyrirtækjum og þeim sem eru að reyna að aðlaga tæknina íslensku samfélagi og nýta hana til verðmætasköpunar.“
Gervigreind Tækni Tengdar fréttir Ekkert blabla: „Þá get ég bara spurt Copilot hvað Rakel er með í laun?“ „Ég skal alveg viðurkenna að ég hef meiri áhyggjur af litlum og meðalstórum fyrirtækjum en þeim stóru,“ segir Guðrún Ragnarsdóttir, ráðgjafi og meðeigandi hjá Strategíu, í samtali um gervigreindina. 9. september 2026 07:02 Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina „Ég vaknaði með strákinn okkar, fékk mér kaffi og sá fyrirsögnina á Vísi: WOW air heyrir sögunni til. Maðurinn minn var enn sofandi, á leið í flug þennan dag. Þetta var algjört áfall – við vorum bæði að missa vinnuna og tekjurnar fóru í núll á einu augabragði,“ segir Marín Jónsdóttir þegar hún rifjar upp örlagamorguninn þegar Vísir – eins og aðrir fjölmiðlar – birti fréttir um þrot WOW. 27. september 2026 08:02 Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi Umræðan um gervigreindina er svo allsráðandi að sumum finnst mikið meira en nóg um. Ekkert virðist gervigreindinni heilagt og á stundum er þetta orðið að jafn þreytandi umræðu og ESB fyrir lok ágúst. 21. september 2026 07:03 Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Það sem hljómaði nánast eins og vísindaskáldskapur í fyrra er orðið að daglegum veruleika í dag. Þar sem aðkoma gervigreindarinnar er að aukast í daglegu lífi hjá okkur dag frá degi. 10. september 2026 07:02 Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Brynjólfur Borgar Jónsson, eigandi Data Lab, segir eina stærstu áskorunina við gervigreindina í dag vera að samfélagið sjálft sé ekki tilbúið fyrir hraðann í þróuninni. 28. maí 2026 07:02 Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Undirbúningur kólnunar: Ekki endilega best að byrja á niðurskurði Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Lokanir, lægðir og samviskubit Úrelt viðhorf: Hraðari breytingar á viðhorfi starfsfólks en stjórnun Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Warren Buffet: Raunverulegur árangur snýst um ástina Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Sjá meira
Ekkert blabla: „Þá get ég bara spurt Copilot hvað Rakel er með í laun?“ „Ég skal alveg viðurkenna að ég hef meiri áhyggjur af litlum og meðalstórum fyrirtækjum en þeim stóru,“ segir Guðrún Ragnarsdóttir, ráðgjafi og meðeigandi hjá Strategíu, í samtali um gervigreindina. 9. september 2026 07:02
Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina „Ég vaknaði með strákinn okkar, fékk mér kaffi og sá fyrirsögnina á Vísi: WOW air heyrir sögunni til. Maðurinn minn var enn sofandi, á leið í flug þennan dag. Þetta var algjört áfall – við vorum bæði að missa vinnuna og tekjurnar fóru í núll á einu augabragði,“ segir Marín Jónsdóttir þegar hún rifjar upp örlagamorguninn þegar Vísir – eins og aðrir fjölmiðlar – birti fréttir um þrot WOW. 27. september 2026 08:02
Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi Umræðan um gervigreindina er svo allsráðandi að sumum finnst mikið meira en nóg um. Ekkert virðist gervigreindinni heilagt og á stundum er þetta orðið að jafn þreytandi umræðu og ESB fyrir lok ágúst. 21. september 2026 07:03
Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Það sem hljómaði nánast eins og vísindaskáldskapur í fyrra er orðið að daglegum veruleika í dag. Þar sem aðkoma gervigreindarinnar er að aukast í daglegu lífi hjá okkur dag frá degi. 10. september 2026 07:02
Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Brynjólfur Borgar Jónsson, eigandi Data Lab, segir eina stærstu áskorunina við gervigreindina í dag vera að samfélagið sjálft sé ekki tilbúið fyrir hraðann í þróuninni. 28. maí 2026 07:02