Viðskipti erlent

Eig­andi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Obar eða Toblerone?
Obar eða Toblerone?

Mondelēz eigandi svissneska súkkulaðisins Toblerone ætlar í mál gegn Catherine's Original breskan vegan súkkulaðiframleiðanda. Ástæðan er formið á súkkulaði breska framleiðandans sem Mondelēz segir að hafi stolið sögufrægu útliti Toblerone súkkulaðsins.

Í umfjöllun breska blaðsins Guardian segir að Mondelēz hafi lagt fram gögn vegna málsins fyrri dómi í London. Fyrirtækið sakar Catherine's Originals um að brjóta gegn vörumerkjarétti með O'bar súkkulaðilengju sem brotin er í bita sem standa uppréttir líkt og Toblerone bitar. Með þessu sé breska fyrirtækið að „villa á sér heimildir,“ líkt og það er orðað í umfjöllun miðilsins.

Fram kemur að Catherine's Originals hafi verið stofnað af Catherine Dodd nokkurri árið 2021 þegar hún var unglingur. Um er að ræða lítið fyrirtæki sem framleiðir súkkulaði í Walberton í Sussex á Englandi og selur það á mörkuðum, á netinu eða í áskrift.

Súkkulaðistykkin eru tvöhundruð grömm og kosta 9,20 pund í mjólkur- eða dökkri útgáfu, rúmar 1500 krónur og allt að 10,55 pund í framandi bragðtegundum á borð við graskerskrydd eða kanilsnúð, rúmar 1800 krónur. Venjulegt Toblerone kostar í Bretlandi 2,5 pund eða því sem nemur rúmum fjögurhundruð krónum.

Guardian eftir eftir Catherine Dodd að súkkulaðistöngin sé í laginu eins og O og það endurspegli orðið Originals (hið upprunalega). Hún segist standa staðfastlega á bakvið vöruna og ímyndina sem fyrirtækinu hafi tekist að skapa.

„Við erum algjörlega ósammála kröfunni vegna O'bar og vinnum með lögfræðingum okkar að því að verja okkur. Satt best að segja er þetta frekar ógnvekjandi fyrir lítið fyrirtæki sem við höfum lagt svo mikla alúð og vinnu í að byggja upp. En þó við séum lítið fyrirtæki þá þýðir það ekki að við séum hrædd við að standa vörð um það sem við höfum skapað.“

Í yfirlýsingu frá Mondelēz International, sem á einnig súkkulaðivörimerkið Cadbury og Côte D’Or-kaffið auk Toblerone segir að lögun Toblerone súkkulaðsins sé ein þekktasta og sérstæðasta vöruhönnun Bretlands sem og alls heimsins. Hönnunin hafi verið aðalmerki vörumerkisins frá árinu 1929. Fyrirtækið segir að sér beri skylda til að verja sitt hugverk, það hafi gert tilraunir til að leysa málið með Catherine's Originals undanfarna mánuði án þess að fara í hart en það hafi ekki tekist.

Fram kemur í umfjöllun Guardian að breska lágvöruverslunarkeðjan Poundland hafi einnig brennt sig á því að framleiða súkkulaði með líkindum við Toblerone. Fyrirtækið hafi árið 2017 neyðst til þess að fresta útgáfu á Twin Peaks súkkulaðistykki, sem var með tvo upprétta hnúða í stað stakra tinda Toblerone, eftir að Mondelēz setti fyrirtækinu afarkosti. Súkkulaðiði hafi að endingu gefið súkkulaðið út með umbúðum í öðrum lit og öðruvísi útliti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×