Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar 19. október 2026 11:16 Umræða um afnám erfðafjárskatts hefur tekið á sig athyglisverða mynd. Í stað þess að ræða hvort réttmætt sé að skattleggja eignir þegar þær ganga í arf hefur athyglin að verulegu leyti beinst að því hvernig stjórnmálamönnum detti í hug að leggja til afnám skatts sem skilar ríkissjóði umtalsverðum tekjum. Þetta eru vissulega tvær mikilvægar spurningar. En þær eru ekki sama spurningin. Það að skattur skili ríkissjóði tekjum er ekki sjálfstæð réttlæting fyrir tilvist hans. Ef svo væri yrði sífellt erfiðara að afnema skatt eftir því sem ríkið hefði innheimt hann lengur og vanist tekjunum betur. Ábyrgðarleysi að vilja afnema skatt? Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur lagt fram frumvarp um afnám erfðafjárskatts. Í pistli sem birtist á Eyjunni 15. október undir fyrirsögninni „Hræsni og ábyrgðarleysi Rósu“ er tillagan gagnrýnd harðlega. Þar er meðal annars fullyrt að með henni yrðu 14 milljarðar króna felldir út af áætluðum árlegum tekjum ríkissjóðs án þess að gerð sé grein fyrir því hvernig mæta eigi tekjutapinu. Þetta er málefnaleg spurning, þótt orðalag pistilsins sé það ekki alltaf. Afnám skatts hefur raunverulegar afleiðingar fyrir ríkisfjármálin. Ef tekjur ríkissjóðs minnka þarf að taka afstöðu til þess hvort draga eigi úr útgjöldum, afla annarra tekna eða sætta sig við lakari afkomu ríkissjóðs. Slíkri umræðu verður ekki vikið til hliðar með almennri skírskotun til eignarréttar. En hið gagnstæða gildir líka. Fjárhagsleg áhrif afnáms skatts svara ekki þeirri spurningu hvort skatturinn sjálfur sé réttlætanlegur. Þetta tvennt þarf að ræða saman. Það er ekki fjárhagslegt ábyrgðarleysi að efast um réttmæti skattlagningar, fremur en það er fullnægjandi rökstuðningur fyrir afnámi hennar að lýsa skattinum óréttlátum. Hver á arfinn - og hver á að skattleggja hann? Í fyrri grein minni, „Hver á arfinn?“, fjallaði ég um ráðstöfunarrétt einstaklinga yfir eigin eignum og þá grundvallarspurningu hvers vegna andlát eigandans eigi að kalla á sérstaka skattlagningu þegar eignir hans ganga til erfingja. Sú spurning stendur enn. En hún á sér aðra hlið sem vert er að horfast í augu við. Þeir sem mæla fyrir erfðafjárskatti benda meðal annars á að erfingi öðlist verðmæti sem hann hafi ekki sjálfur unnið fyrir. Hvers vegna eigi slík eignaaukning að njóta hagstæðari skattalegrar meðferðar en tekjur þess sem vinnur fyrir hverri krónu? Þá geti erfðafjárskattur stuðlað að jafnari tækifærum og dregið úr samþjöppun auðs milli kynslóða. Þetta eru málefnaleg sjónarmið sem ekki verða afgreidd með því einu að vísa til eignarréttar. En þau svara heldur ekki allri spurningunni. Röksemdin um að erfinginn hafi ekki unnið fyrir verðmætunum horfir fyrst og fremst á viðtakandann. Hún lítur að minna leyti til þess sem aflaði eignanna og þess ráðstöfunarréttar sem hann naut yfir þeim. Sá sem fær gjöf frá foreldrum sínum hefur ekki heldur unnið fyrir henni. Sama á við um fjölmargar aðrar eignatilfærslur milli einstaklinga. Það leiðir ekki sjálfkrafa til þeirrar niðurstöðu að allar slíkar tilfærslur eigi að sæta sömu skattlagningu og launatekjur. Þvert á móti gerir skattkerfið sjálft greinarmun á ólíkum tegundum eignatilfærslna, meðal annars eftir eðli þeirra og lagalegum forsendum. Réttur einstaklings til að ráðstafa eignum sínum verður ekki metinn eingöngu út frá því hvort sá sem tekur við þeim hafi sjálfur unnið til þeirra. Þarna mætast tvö lögmæt sjónarmið: Annars vegar ráðstöfunarréttur eigandans og hins vegar sjónarmið um skattalegt jafnræði og dreifingu efnahagslegra gæða. Hvorugt þeirra verður sjálfkrafa að víkja fyrir hinu. Það er verkefni löggjafans að vega þau saman og rökstyðja niðurstöðuna. Frumvarpið er meira en pólitísk yfirlýsing Í fyrrnefndum pistli Eyjunnar er tillögu Rósu lýst sem óútfærðri hugdettu stjórnarandstöðuþingmanns. Það er ekki alveg sanngjörn lýsing á frumvarpinu sjálfu. Frumvarpið felur ekki aðeins í sér að lög um erfðafjárskatt falli brott. Þar eru jafnframt lagðar til breytingar á tekjuskattslögum, meðal annars þannig að erfingi sem síðar selur arfteknar eignir taki við stofnverði þeirra eins og það var hjá arfleifanda. Með öðrum orðum er ekki lagt til að arftaka leiði sjálfkrafa til þess að fyrri skattaleg staða eignanna þurrkist út. Erfinginn tekur að þessu leyti við skattalegri stöðu arfleifandans. Þetta er mikilvægt atriði þegar rætt er um samspil erfðafjárskatts og síðari skattlagningar söluhagnaðar. Það þýðir ekki að frumvarpið sé hafið yfir gagnrýni eða að fjárhagslegar afleiðingar þess hafi verið leystar með fullnægjandi hætti. En það sýnir að tillagan verðskuldar efnislega umræðu. Hvort Sjálfstæðisflokkurinn hefði átt að afnema skattinn fyrr, meðan hann sat í ríkisstjórn, er síðan önnur spurning. Það má vissulega gagnrýna stjórnmálaflokk fyrir að framkvæma ekki það sem hann boðar. En sú gagnrýni segir ekkert sjálfstætt um réttmæti skattsins. Þegar tekjuþörfin verður aðalröksemdin Í pistli Eyjunnar er spurt hvort taka eigi 14 milljarða af framlögum til heilbrigðismála, menntamála eða samgönguframkvæmda í stað þeirra tekna sem falla brott verði erfðafjárskattur afnuminn. Spurningin er skiljanleg út frá sjónarmiðum fjárlagagerðar. En hún getur ekki ein og sér ráðið niðurstöðu umræðunnar. Ef sérhver tillaga um skattalækkun er afgreidd með því að spyrja hvaða skóla, sjúkrahúsi eða vegi eigi þá að fórna er hætt við að umræðan um réttmæti einstakra skatta komist aldrei af stað. Með sömu röksemdafærslu mætti hafna nánast hvaða skattalækkun sem er. Auðvitað verður að fjármagna sameiginlega þjónustu samfélagsins. En það þýðir ekki að sérhver skattstofn sem ríkið hefur komið sér upp sé þar með réttlætanlegur til frambúðar. Við mat á skattlagningu þarf að spyrja fleiri spurninga en hversu miklum tekjum hún skilar. Hver ber skattinn? Hvers vegna er einmitt þessi eignatilfærsla skattlögð? Hvaða markmiðum á skatturinn að þjóna? Eru aðrar leiðir færar og hvernig samræmist skattlagningin öðrum grundvallarsjónarmiðum skattkerfisins? Þessar spurningar hverfa ekki þótt ríkissjóður þurfi á tekjunum að halda. Tvær hliðar sömu ábyrgðar Ég hef enga sérstaka þörf fyrir að verja Rósu Guðbjartsdóttur eða Sjálfstæðisflokkinn fyrir pólitískri gagnrýni. Það er verkefni þeirra sjálfra. En mér finnst varhugavert þegar umræða um afnám tiltekins skatts færist svo hratt yfir í ásakanir um ábyrgðarleysi að sjálf spurningin um réttmæti skattlagningarinnar verður nánast aukaatriði. Sá sem vill afnema skatt þarf að geta gert grein fyrir afleiðingum þess. En sá sem vill viðhalda honum þarf líka að geta rökstutt hvers vegna einmitt þessi skattlagning eigi rétt á sér. Í umræðunni um erfðafjárskatt er því ástæða til að spyrja áfram hver eigi arfinn. En jafnframt þarf að spyrja hvers vegna, með hvaða rökum og að hvaða marki ríkið eigi að skattleggja hann. Fjárhagsleg ábyrgð felst ekki aðeins í því að tryggja ríkissjóði tekjur. Hún felst líka í því að geta rökstutt hvers vegna ríkið eigi að innheimta þær, af hverjum og á hvaða forsendum. Það er ekki ábyrgðarleysi að spyrja hvort skattur eigi rétt á sér. Það væri öllu heldur ábyrgðarleysi að telja þá spurningu óþarfa vegna þess eins að skatturinn skilar tekjum. Höfundur er lögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Ármannsson Mest lesið Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Sjá meira
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun