Skoðun

Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina

Sævar Þór Halldórsson skrifar

Í gær, sunnudaginn 18. október, urðu merk tímamót í íslensku menningarlífi þegar nýstofnuð Ópera hóf starfsemi sína með glæsilegum opnunarviðburði í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Akureyringar, nærsveitungar og unnendur klassískrar tónlistar fengu þar tækifæri til að hlýða á fjóra nýráðna söngvara Óperunnar, þau Kristínu Einarsdóttur Mäntylä, Hildigunni Einarsdóttur, Gunnar Björn Jónsson og Kristján Inga Jóhannesson. Með þeim komu fram Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, norðlenskir kórar og fleiri frábærir listamenn, undir stjórn tónlistarstjóra Óperunnar, Richards Schwennicke.

Það er sérstaklega ánægjulegt og raunar táknrænt að þessi nýja þjóðarstofnun skuli hafa valið að hefja starfsemi sína utan höfuðborgarsvæðisins, í svæðisborginni Akureyri. Með því eru send mikilvæg skilaboð um að óperulistin tilheyri þjóðinni allri, óháð búsetu. Enn ánægjulegra er að opnunardagskráin ferðast áfram um landið, meðal annars til Eskifjarðar, Skálholts og Reykjanesbæjar, áður en hún kemur til Reykjavíkur.

En þessi fallega byrjun ætti aðeins að vera upphafið að einhverju miklu stærra.

Fyrir rúmum tveimur árum skrifaði ég hér á Vísi um mikilvægi þess að landsbyggðin yrði raunverulegur hluti af starfsemi þjóðaróperu, en ekki aðeins viðtakandi sýninga sem sendar væru frá höfuðborginni. Sú skoðun hefur ekki breyst. Þvert á móti felast nú mikil tækifæri í því að byggja upp fjölbreytt og öflugt óperulíf um allt land.

Það þarf nefnilega ekki að setja upp stórar og kostnaðarsamar óperusýningar á hverjum stað til að ná því markmiði. Óperulistin er svo miklu fjölbreyttari en það. Hún getur verið stórbrotin sviðsuppfærsla með heilli sinfóníuhljómsveit, en líka lítil og persónuleg sýning þar sem örfáir listamenn skapa töfra í félagsheimili, skóla eða kirkju.

Á undanförnum árum hafa sjálfstæðir óperuhópar sprottið upp og unnið ómetanlegt starf við að kynna listformið fyrir nýjum áheyrendum. Þessir hópar hafa tekið áhættur, sótt um styrki, lagt ómælda vinnu í verkefni sín og jafnvel greitt úr eigin vasa til að koma hugarefnum sínum á svið. Þeir hafa farið með óperuna inn í leikskóla, grunnskóla og til almennings, oft til fólks sem annars hefði aldrei kynnst þessari stórkostlegu listgrein.

Þarna liggur eitt stærsta tækifæri nýju Óperunnar: Að verða ekki eingöngu sýningarstofnun heldur einnig öflugur framleiðandi og samstarfsaðili óperulistar um allt land.

Með því að Óperan er nú hluti af Þjóðleikhúsinu skapast enn fleiri tækifæri til slíks samstarfs. Þar er fyrir hendi mikil þekking, reynsla og öflug umgjörð utan um sviðslistaframleiðslu sem mætti nýta til að efla óperulist um allt land. Með samstarfi við sjálfstæða óperuhópa, þar sem Óperan og Þjóðleikhúsið gætu lagt til faglega þekkingu, söngvara, tæknilega aðstoð, aðstoð við framleiðslu og kynningu og jafnvel stuðning við fjármögnun, væri hægt að styrkja starfsemi sem þegar er til staðar og skapa ný verkefni. Óperan gæti þannig orðið mikilvægur samstarfsaðili við framleiðslu minni sýninga, stutt við nýsköpun og auðveldað sýningum að ferðast milli landshluta. Þannig væri ekki einungis verið að flytja menningu út á land, heldur skapa menningu í heimabyggð, efla sjálfstæða listahópa, styrkja atvinnumöguleika listafólks og byggja upp lifandi óperustarf um land allt.

Það samstarf sem við sáum í Hofi í gær, þar sem kraftar nýju Óperunnar og norðlensks tónlistarlífs sameinuðust, sýnir vel hvað hægt er að gera þegar ólíkir aðilar taka höndum saman. Vonandi er það fyrirheit um það sem koma skal.

Það ber að fagna þessu fyrsta skrefi Óperunnar af heilum hug. Nú er tækifærið til að halda áfram, hugsa stórt en framkvæma líka smátt, gefa sjálfstæðum listahópum byr undir báða vængi og tryggja að óperulistin fái að blómstra um allt Ísland.

Óperan er hluti af Þjóðleikhúsinu, en hlutverk hennar sem þjóðaróperu nær langt út fyrir veggi þess. Hún verður ópera allrar þjóðarinnar með því að skapa menningu með fólkinu sem unnir þessari list um land allt, ekki aðeins með því að skapa menningu fyrir það.

Höfundur er áhugamaður um landsbyggðina og óperulistina.




Skoðun

Sjá meira


×