Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Atli Ísleifsson skrifar 19. október 2026 08:36 Andri Gunnarsson, stjórnarformaður Eðalfangs og Svavar Þór Guðmundsson, verðandi forstjóri Eðalfangs. Eðalfang ehf. hefur undirritað samkomulag um sameiningu við Phoenix Seafood ehf., markaðs- og sölufyrirtæki í sjávarútvegi.
Í tilkynningu segir að við samrunann verði Phoenix sjálfstætt dótturfélag Eðalfangs, sem sé móðurfélag Norðanfisks, Borg Salmon og 101 Seafood. „Áætluð samanlögð velta félaganna á árinu 2026 er um 18 milljarðar króna. Um 60 starfsmenn munu starfa innan samstæðunnar og er gert ráð fyrir að 75-80% veltunnar verði á erlendum mörkuðum. Svavar Þór Guðmundsson, aðaleigandi Phoenix Seafood, verður einn af stærstu hluthöfum Eðalfangs við viðskiptin og tekur við sem forstjóri samstæðunnar. Viðskiptin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins. Phoenix Seafood var stofnað árið 2020 og selur sjávarafurðir eingöngu á erlenda markaði. Ársvelta félagsins nemur tæpum 10 milljörðum króna. Félagið er stór söluaðili á hvítfiski og laxi til Bandaríkjanna, Frakklands, Bretlands og landa í Asíu. Tækifæri í aukinni sölu laxaafurða erlendis Markmið samrunans er að byggja upp sterkari samstæðu sem leggur áherslu á markaðs- og sölustarf með breiða vörulínu í sjávarfangi, bæði innanlands og erlendis. Phoenix hefur verið mikilvægur samstarfsaðili Eðalfangs undanfarin ár og starfsmenn félagsins búa yfir áratuga reynslu auk víðtækra viðskiptatengsla á erlendum mörkuðum,“ segir í tilkynningunni. Haft er eftir Andra Gunnarssyni, stjórnarformanni Eðalfangs, að félagið hafi hafið vegferðina með Eðalfang fyrir nokkrum árum með kaupum á Norðanfiski, Borg Salmon og 101 Seafood. „Félögin hafa öll vaxið umtalsvert á liðnum árum og stutt hvert við annað. Næsta skref er að efla sölu á erlendum mörkuðum, sérstaklega á laxaafurðum. Öflug vinnsla og breið vörulína félaganna, ásamt traustum viðskiptasamböndum og reynslumiklu söluteymi Phoenix, skapa enn betri grundvöll fyrir áframhaldandi vöxt á erlendum mörkuðum. Sameiningin gerir okkur kleift að tengja starfsemi félaganna enn betur saman. Það er jafnframt mikið ánægjuefni að fá Svavar til að leiða næsta vaxtarskeið félagsins,“ segir Andri. Svavar Þór tekur við sem forstjóri Um Svavar Þór segir að hann hafi 25 ára reynslu af sölu sjávarafurða og hafi starfað hjá Phoenix Seafood frá stofnun félagsins árið 2020. „Við sjáum mikil tækifæri í að bjóða viðskiptavinum okkar um allan heim íslenskan lax samhliða hvítfiskinum sem þeir þekkja vel. Enn er mikil vinna fram undan við að kynna íslenskan eldislax á erlendum mörkuðum. Með því að sameina krafta okkar með Borg Salmon og Norðanfiski, dótturfélögum Eðalfangs, stöndum við sterkari að þeirri kynningu. Við, ásamt 101 Seafood, getum boðið viðskiptavinum okkar frábærar vörur þessara félaga, hvort sem um er að ræða fersk flök, bita eða reyktar afurðir,“ er haft eftir Svavari Þór, verðandi forstjóra Eðalfangs.
Kaup og sala fyrirtækja Vistaskipti Mest lesið Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Viðskipti innlent Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Sjá meira