Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir skrifar 13. október 2026 22:03 Þegar þú býrð á Ísafirði þarftu ekki að lesa opinberar skýrslur til að sjá hvort verðmætasköpun sé til staðar. Þú sérð hana í grunnskólanum sem fyllist af börnum, í nýju húsunum sem rísa og í öflugu íþróttastarfi. Stundum finnst mér umræðan um atvinnulíf og skattheimtu á Íslandi bera þess merki að allt of margir geri sér ekki grein fyrir því hvernig verðmætin verða til. Oft er litið á fyrirtækin eins og þau séu fyrst og fremst tekjulind fyrir ríkissjóð. Við sem búum á Vestfjörðum sjáum þau öðruvísi. Við sjáum störfin sem þau skapa, fjárfestingarnar sem þau ráðast í og áhrifin sem þau hafa á samfélagið allt. Ég hef séð með eigin augum hvernig öflugt atvinnulíf getur snúið við þróun sem lengi virtist óstöðvandi. Áður snerist umræðan um fólksfækkun, stöðnun og takmörkuð tækifæri. Á síðastliðnum árum hefur fólki fjölgað og því fór umræðan að snúast um hvernig eigi að stækka skólana, fjölga lóðum til húsbygginga og nýta sem best þau tækifæri sem hafa skapast. Þetta gerðist ekki af sjálfu sér. Þetta gerðist vegna þess að einstaklingar og fyrirtæki voru tilbúin að taka áhættu, fjárfesta og skapa verðmæti. Vestfirðir í sókn Fiskeldi hefur verið einn af hornsteinum þeirrar uppbyggingar sem Vestfirðir hafa notið á síðustu árum. Hvort sem fólk vinnur beint við greinina eða ekki finnur það fyrir áhrifunum. Þar hafa skapast fjölbreytt störf fyrir verkfræðinga, líffræðinga, tæknifólk, sjómenn, bílstjóra, iðnaðarmenn og marga fleiri. Áhrifin ná þó langt út fyrir fyrirtækin sjálf. Þegar fyrirtækjum gengur vel dafnar samfélagið í kringum þau. Sveitarfélög fá sterkari skattstofna, verslanir og fyrirtæki fleiri viðskiptavini og iðnaðarmenn meiri verkefni. Íþróttafélög fá styrki sem gera þeim kleift að halda úti metnaðarfullu starfi fyrir börn og ungmenni. Þegar árangur verður að skotmarki Þess vegna vekur það furðu þegar fyrirtæki sem hafa fjárfest háum upphæðum í reksturinn, lifað af erfið upphafsár og loksins náð fótfestu er mætt með sífellt auknum álögum. Stundum virðist sem fyrsta viðbragð stjórnvalda við árangri sé að leita nýrra leiða til að skattleggja hann. Auðvitað eiga fyrirtæki að greiða skatta en það hlýtur að vera eðlilegt að spyrja hvar mörkin liggja. Hvenær hættir skattheimta að vera sanngjarnt framlag til sameiginlegra verkefna og verður þess í stað hindrun fyrir frekari uppbyggingu? Óvissa bitnar á samfélaginu Á Vestfjörðum er þetta ekki fræðileg umræða. Hér snýst hún um störf, fjölskyldur og framtíð samfélaga. Óvissa í atvinnugreinum eins og fiskeldi hefur afleiðingar. Þegar fyrirtæki fresta fjárfestingum eða hægja á uppbyggingu bitnar það ekki aðeins á eigendum þeirra. Það bitnar á iðnaðarmanninum sem missir verkefni, íþróttafélaginu sem fær lægri styrki og unga fólkinu sem veltir fyrir sér hvort framtíð þess sé hér eða annars staðar. Við erum því miður farin að finna fyrir þessu í samfélaginu. Þeir sem standa að íþrótta- og æskulýðsstarfi á Vestfjörðum finna að erfiðara hefur orðið að sækja stuðning til atvinnulífsins. Það er einn af mörgum fylgifiskum þess þegar svigrúm fyrirtækja minnkar. Hættið að þvælast fyrir okkur Það sem mér hefur fundist athyglisverðast er að þegar þingmenn heimsækja Vestfirði eru skilaboðin yfirleitt þau sömu, óháð flokkslínum. Hér séu tækifærin til staðar, hér sé krafturinn til staðar og hér séu fyrirtæki tilbúin að fjárfesta og skapa verðmæti. Það sem þurfi helst að gerast er að ríkið hætti að þvælast fyrir okkur. Þess vegna er erfitt að skilja hvers vegna sífellt er leitað leiða til að auka álögur á þær atvinnugreinar sem standa undir svo stórum hluta verðmætasköpunar þjóðarinnar. Við töpum öll Við sem búum á Vestfjörðum erum ekki að biðja um sérkjör. Við erum einfaldlega að biðja um að þeir sem skapa verðmæti fái svigrúm til að halda því áfram. Að stjórnvöld horfi á fyrirtæki sem samstarfsaðila í uppbyggingu landsins en ekki aðeins skattstofna. Saga Vestfjarða síðustu ára sýnir hvað gerist þegar fólk fær tækifæri til að skapa, fjárfesta og byggja upp. Þá fjölgar íbúum, samfélög styrkjast og bjartsýni tekur við af stöðnun. Ef markmiðið er að fjölga störfum og auka verðmætasköpun liggur lausnin ekki í því að leggja sífellt þyngri byrðar á þær atvinnugreinar sem bera uppi hagvöxtinn. Lausnin er að skapa stöðugleika og traust svo fyrirtæki treysti sér til að fjárfesta áfram. Við Vestfirðingar höfum séð hvað gerist þegar það tekst. Spurningin er hvort stjórnvöld ætli að styðja við þá þróun eða halda áfram að leggja henni hindranir í veg. Því þegar verðmætasköpun veikist eru það ekki aðeins fyrirtækin sem tapa. Við töpum öll. Höfundur er íbúi á Ísafirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun