Sport

Þurfum að vera ein­beittar allan leikinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
 Alexandra Jóhannsdóttir í landsleik.
 Alexandra Jóhannsdóttir í landsleik.

„Mér fannst eiginlega bara eftir að við náðum inn fyrsta markinu þá fannst mér þetta bara ganga nokkuð vel. Þetta eru svona nokkur atriði sem hefðu getað gengið betur en svona heilt yfir 4-0 á útivelli, ég myndi bara telja það nokkuð gott,“ segir Alexandra Jóhannsdóttir leikmaður íslenska landsliðsins í knattspyrnu sem mætir Króatíu í umspili um laust sæti á HM í Brasilíu á Laugardalsvelli í kvöld.

Eins og Alexandra segir fór fyrri leikurinn 4-0 og þarf Króatía kraftaverk til að snúa þessu við. Leikurinn hefst klukkan 17:30 í kvöld.

„Þessi úrslit gefa okkur bara fullt af sjálfstrausti til þess að fara alla leið í leiknum heima,“ segir Alexandre en var eitthvað sem hefði mátt fara betur?

„Það voru bara svona nokkrir kaflar þar sem við hefðum kannski átt að vera aðeins meira fókuseraðar. Aðallega í seinni hálfleik þar sem við fengum nokkrar skyndisóknir á okkur og Sessa og Glódís gerðu það báðar rosalega vel tvívegis. Bara svoleiðis atriði að vera með fullan fókus allan tímann.“

Hún segir að leikmenn liðsins ætli sér ekki að mæta með hurðirnar á hælunum í leik kvöldsins þrátt fyrir að vera fjórum mörkum yfir.

„Við erum að mæta í landsleik. Ég myndi bara segja að við mætum fullar af sjálfstrausti og með kassann úti og tilbúnari, við ætlum að vinna leikinn. Við erum ekki að fara í eitthvað annað.“

Allar líkur eru á því að Ísland mæti Portúgal í hreinu úrslitaeinvígi um sæti á HM en Portúgal er í nákvæmlega sömu stöðu og Ísland eftir að hafa unnið fyrri leik sinn í einvíginu 4-0.

Klippa: Þurfum að vera einbeittar allan leikinn



Fleiri fréttir

Sjá meira


×