Konurnar komu Íslandi upp um deild í Bakgarðshlaupum Aron Guðmundsson skrifar 13. október 2026 11:01 Elísa Kristinsdóttir og Mari Järsk hlupu saman heila 56 hringi í bakgarðshlaupinu í Öskjuhlíð í vor. VÍSIR/VILHELM Íslenska landsliðið færist upp um deild sökum góðs árangurs fyrir komandi heimsmeistaramót í Bakgarðshlaupum sem fram fer um helgina.
Fimmtán hlauparar munu hlaupa fyrir Íslands hönd á HM landsliða sem hefst þann 17. október næstkomandi í 74 löndum. Íslenska landsliðið mun hlaupa sína bakgarðshringi í Elliðaárdalnum og verður sýnt beint frá keppninni hér á Vísi. Íslenska landsliðið í Bakgarðshlaupum stóð sig frábærlega á heimsmeistaramótinu fyrir tveimur árum síðan og vann liðið þar AA deildina með því að enda í fjórtánda sæti af alls 63 liðum. Lazarus Lake, hugmyndasmiðurinn á bakvið bakgarðshlaup, hefur legið yfir gögnum tengdum liðunum sem hafa tekið þátt á heimsmeistaramótinu og raðað þeim niður í deildir eftir styrkleika. Þar hefur Ísland færst upp um deild í kjölfar góðs árangurs, er nú í AAA deild, og segir Lazarus það að miklu leyti góðum kvenkyns bakgarðshlaupurum Íslendinga að þakka. Átta konur voru í landsliði Íslands árið 2024 og sjö karlar. Landsliðshlaupið árið 2024 er mörgum ferskt í minni en það var í því hlaupi sem að Þorleifur Þorleifsson setti núverandi Íslandsmet upp á 62 hringi en alls hlupu fjórir íslenskir hlauparar 60 hringi eða fleiri í þeirri keppni. Báðar konurnar sem gerðu það eru hins vegar ekki með í ár. Elísa Kristinsdóttir hefur sagt skilið við bakgarðshlaup og skarar nú fram úr í utanvegahlaupum og þá er Marlena Radziszewska ekki með. Lazarus segir að ef ekki væri fyrir fjarveru þessara sterku hlaupara þá væri Ísland enn hærra sett í deildarkeppninni. Stórveldin í bakgarðshlaupum eru í eins konar ofurdeild fyrir komandi keppni og Ísland í deildinni þar fyrir neðan með öðrum 16 þjóðum. Ræst verður út í HM hlaupið á sama tíma í hverju landi fyrir sig og þó að hver og einn hlaupari stefni að einhverju persónulegu markmiði er það samanlagður hringjafjöldi hvers lands fyrir sig sem gildir þegar úrslitin ráðast. Belgía er ríkjandi heimsmeistari í Bakgarðshlaupum en Ísland náði flottum árangri á síðasta HM árið 2024 og endaði í fjórtánda sæti af 63 þjóðum sem skráðar voru til leiks.
Bakgarðshlaup Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Áhugaverð ummæli Teits hafa hrist upp í hlutunum Verður líkamleg og andleg barátta Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Tímabilinu lokið hjá Viktori Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu Finnar neita að spila við Rússland á HM Haukur um slæma stöðu Löwen: „Góður tími til að snúa þessu við“ LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Líkir Dallas Cowboys við ræningjana tvo í Home Alone West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Dagskráin í dag: Meistaradeildin og risa leikur í körfunni hér heima Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sara Rún öflug í sigri KR Sjá meira