Sport

Konurnar komu Ís­landi upp um deild í Bak­garðs­hlaupum

Aron Guðmundsson skrifar
Elísa Kristinsdóttir og Mari Järsk hlupu saman heila 56 hringi í bakgarðshlaupinu í Öskjuhlíð í vor.
Elísa Kristinsdóttir og Mari Järsk hlupu saman heila 56 hringi í bakgarðshlaupinu í Öskjuhlíð í vor. VÍSIR/VILHELM

Ís­lenska lands­liðið færist upp um deild sökum góðs árangurs fyrir komandi heims­meistaramót í Bak­garðs­hlaupum sem fram fer um helgina.

Fimmtán hlauparar munu hlaupa fyrir Íslands hönd á HM landsliða sem hefst þann 17. október næstkomandi í 74 löndum. Íslenska landsliðið mun hlaupa sína bakgarðshringi í Elliðaárdalnum og verður sýnt beint frá keppninni hér á Vísi.

Íslenska landsliðið í Bakgarðshlaupum stóð sig frábærlega á heimsmeistaramótinu fyrir tveimur árum síðan og vann liðið þar AA deildina með því að enda í fjórtánda sæti af alls 63 liðum.

Lazarus Lake, hugmyndasmiðurinn á bakvið bakgarðshlaup, hefur legið yfir gögnum tengdum liðunum sem hafa tekið þátt á heimsmeistaramótinu og raðað þeim niður í deildir eftir styrkleika.

Þar hefur Ísland færst upp um deild í kjölfar góðs árangurs, er nú í AAA deild, og segir Lazarus það að miklu leyti góðum kvenkyns bakgarðshlaupurum Íslendinga að þakka. Átta konur voru í landsliði Íslands árið 2024 og sjö karlar.

Landsliðshlaupið árið 2024 er mörgum ferskt í minni en það var í því hlaupi sem að Þorleifur Þorleifsson setti núverandi Íslandsmet upp á 62 hringi en alls hlupu fjórir íslenskir hlauparar 60 hringi eða fleiri í þeirri keppni.

Báðar konurnar sem gerðu það eru hins vegar ekki með í ár. Elísa Kristinsdóttir hefur sagt skilið við bakgarðshlaup og skarar nú fram úr í utanvegahlaupum og þá er Marlena Radziszewska ekki með.

Lazarus segir að ef ekki væri fyrir fjarveru þessara sterku hlaupara þá væri Ísland enn hærra sett í deildarkeppninni.

Stórveldin í bakgarðshlaupum eru í eins konar ofurdeild fyrir komandi keppni og Ísland í deildinni þar fyrir neðan með öðrum 16 þjóðum.

Ræst verður út í HM hlaupið á sama tíma í hverju landi fyrir sig og þó að hver og einn hlaupari stefni að einhverju persónulegu markmiði er það samanlagður hringjafjöldi hvers lands fyrir sig sem gildir þegar úrslitin ráðast.

Belgía er ríkjandi heimsmeistari í Bakgarðshlaupum en Ísland náði flottum árangri á síðasta HM árið 2024 og endaði í fjórtánda sæti af 63 þjóðum sem skráðar voru til leiks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×