Daníel og Mikael gátu loksins fagnað saman Sindri Sverrisson skrifar 12. október 2026 19:30 Daníel Leó Grétarsson fagnaði sigri í kvöld í fyrsta leik eftir landsleikjatörnina. Þetta var fyrsti sigur hans í deildarleik með AGF. Getty/Alex Nicodim Dönsku meistararnir í AGF frá Árósum þurftu að bíða fram í tíundu umferð þar til þeir fögnuðu loks sínum fyrsta sigri á leiktíðinni í kvöld, 3-0 gegn botnliði Sönderjyske.
Landsliðsmennirnir Daníel Leó Grétarsson og Mikael Anderson, sem vissulega fögnuðu saman tveimur sigrum með Íslandi í nýafstaðinni landsleikjatörn, fögnuðu því í fyrsta sinn saman sigri í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld. Þeir voru báðir í byrjunarliðinu og lék Mikael allan leikinn en Daníel var skipt af velli á 77. mínútu þegar sigurinn var í höfn. Daníel kom til AGF í byrjun september, eftir að Mikael hafði snúið aftur til félagsins í sumar, en titilvörn AGF fór skelfilega af stað og var liðið aðeins með fimm stig eftir fyrstu níu umferðirnar. Mikael Anderson á ferðinni í 3-0 sigrinum gegn Búlgaríu á dögunum.vísir/Anton Sigurinn gegn Sönderjyske í kvöld var því langþráður og jafnframt afar öruggur en mörkin þrjú komu á fyrstu fjörutíu mínútum leiksins. Norðmaðurinn Kristian Arnstad skoraði það fyrsta úr glæsilegri aukaspyrnu á 9. mínútu, Janni Serra bætti við öðru skömmu síðar og Frederik Tingager skoraði þriðja markið eftir hornspyrnu Arnstads. Brynjar Ingi Bjarnason, sem kallaður var inn í íslenska landsliðshópinn fyrir lokaleikinn í landsleikjatörninni, var í byrjunarliði Sönderjyske í kvöld en lék aðeins fyrri hálfleikinn. Íslendingarnir fögnuðu sigri í Svíþjóð Í Svíþjóð var Daníel Tristan Guðjohnsen í byrjunarliði Malmö sem vann 1-0 gegn Kalmar á heimavelli. Daníel, sem átti risastóran þátt í að koma U21-landsliði Íslands í umspil um sæti á EM, lék fram á 78. mínútu en var skipt út af skömmu eftir mark Otto Rosengren sem reyndist eina mark leiksins. Júlíus Magnússon og Ari Sigurpálsson voru sömuleiðis í sigurliði Elfsborg sem vann öruggan 4-0 sigur gegn Halmstad á heimavelli. Elfsborg er nú með 40 stig í 4. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar, eftir 23 umferðir af 30, en Malmö er í 6. sæti með 36 stig. Sirius er enn langefst með 54 stig.
Danski boltinn Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Segir félagið í skítnum Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira