Af hverju ekki hún? Thelma Kristín Kvaran skrifar 14. október 2026 08:02 Fyrir fjórum árum skrifaði ég grein sem bar yfirskriftina „Hafðu hátt, taktu pláss… en ekki vera hávær frekja!“. Þar birti ég meðal annars setningar sem konur höfðu heyrt í tengslum við störf sín, starfsframa og fjölskyldulíf: „Þetta er of mikið álagsstarf fyrir konu með ung börn.“ „Hvað finnst manninum þínum um að þú þénir meira en hann?“ „Þú ert nú meiri frekjan!“ „Hver sér um börnin þegar þau verða veik?“ „Mikið áttu góðan mann!“ Þetta voru raunveruleg svör sem ég fékk þegar ég spurði konur hvað hefði verið sagt við þær í tengslum við starf þeirra eða starfsþróun sem þær töldu ólíklegt að væri sagt með sama hætti við karla. Nú eru liðin fjögur ár og þá spyr ég: Hvað hefur breyst? Vonandi heilmikið. En tölurnar segja okkur líka að við eigum enn töluvert verk fyrir höndum. Konur eru aðeins um 21,3% af þeim sem gegna starfi forstjóra og framkvæmdastjóra fyrirtækja á Íslandi. Jafnframt er aðeins ein kona stjórnarformaður í félagi sem skráð er á aðalmarkað íslensku Kauphallarinnar og aðeins fimm konur gegna þar forstjórastöðu. Það eru 27 fyrirtæki skráð í Kauphöllina. Það er erfitt að horfa fram hjá þessum tölum. Sérstaklega í ljósi þess að í mörg ár höfum við hvatt konur áfram: ·Vertu sýnileg ·Trúðu á sjálfa þig ·Sæktu um starfið ·Hafðu hátt ·Taktu pláss Allt eru þetta ágætis ráð. En kannski er spurningin orðin önnur: Er nóg að segja konum að taka pláss ef við breytum ekki því hverjum við gefum pláss? Kannski þurfa konur ekki að breytast Það er mikið rætt um að konur þurfi að vera duglegri að rétta upp hönd. Að þær sæki síður um störf nema þær telji sig uppfylla allar kröfur. Að þær þurfi að hafa meira sjálfstraust, vera sýnilegri, semja betur um laun og sækjast eftir meiri ábyrgð. En það er ákveðin hætta fólgin í þessari umræðu. Hún getur nefnilega látið eins og vandamálið liggi fyrst og fremst hjá konum. Að þegar konur komast síður í æðstu stjórnunarstöður sé lausnin sú að þær þurfi einfaldlega að vera aðeins hugrakkari. Ég held að við þurfum að horfa lengra. Við þurfum líka að skoða okkur sjálf og ákvarðanirnar sem við tökum. ·Hvern sjáum við fyrir okkur þegar við hugsum um forstjóra? ·Hver fær að teljast „efnilegur“ áður en hann hefur gert allt? ·Hver fær tækifæri til að vaxa inn í stórt hlutverk? ·Hver þarf að sanna sig aftur og aftur áður en við erum tilbúin að treysta henni fyrir því? ·Þegar kona er ákveðin, kröfuhörð og metnaðarfull, notum við þá sömu orð um hana og karl sem sýnir nákvæmlega sömu hegðun? Þarna finnst mér áhugaverðasta samtalið liggja í dag. Þetta gerist nefnilega ekki af sjálfu sér Ég hef unnið við ráðningar í mörg ár og eitt verður sífellt ljósara: Þær ákvarðanir sem við tökum um fólk skipta máli. ·Stundum þarf einhver að benda á manneskjuna sem enginn hafði hugsað um. ·Stundum þarf að spyrja af hverju það eru eingöngu karlar á listanum. ·Stundum þarf að stoppa og velta fyrir sér hvort við séum að meta tvo einstaklinga eftir sömu mælistiku. ·Stundum þarf að minna á muninn á milli kynja. Stundum þarf einfaldlega einhver að segja: ·Af hverju ekki hún? Jafnrétti felst ekki í því að ráða konu vegna þess að hún er kona. Auðvitað á að ráða hæfasta einstaklinginn. En við þurfum að vera fullviss um að konur hafi í raun fengið sama tækifæri til að vera meðal þeirra sem við teljum hæfasta. Þar liggur mikil ábyrgð hjá stjórnum, stjórnendum og mannauðsfólki. Við sem vinnum við stjórnendaleit (head-hunting) berum sérstaklega mikla ábyrgð á að tryggja góða fjölbreytni í þeim hópi umsækjenda sem við kynnum í störf. Árangur á líka að fá athygli Í dag fer fram viðurkenningarathöfn Jafnvægisvogarinnar. Þar verða veittar viðurkenningar til þátttakenda sem hafa náð að jafna hlutfall kynja í efsta lagi stjórnunar. Ég þekki þetta verkefni vel, enda fékk ég sjálf tækifæri til að stýra því á sínum tíma. Þó að tölurnar í atvinnulífinu sýni að enn sé langt í land finnst mér ekki síður mikilvægt að beina kastljósinu að þeim fyrirtækjum og stofnunum sem sýna að breytingar eru mögulegar. Vegna þess að jafnrétti verður ekki til af sjálfu sér. Það verður til þegar einhver ákveður að gera hlutina öðruvísi. Hafðu hátt. Taktu pláss. Þegar ég skrifaði greinina fyrir fjórum árum beindi ég orðum mínum fyrst og fremst að konum. Ég hvatti þær áfram og minnti á mikilvægi þess að orð okkar og viðhorf gætu annaðhvort dregið úr eða ýtt undir sjálfstraust og metnað. Í dag myndi ég færa fókusinn aðeins til. Kannski þurfum við ekki stöðugt að segja konum að vera hugrakkari, ákveðnari og duglegri að taka pláss. Kannski þurfum við hin líka að verða duglegri að opna dyrnar. Að sjá hæfileikana. Að hvetja konuna sem er tilbúin í næsta skref. Að spyrja okkur sjálf þegar við horfum yfir hóp mögulegra stjórnenda: Erum við virkilega að meta alla með sömu augum? Því konur þurfa ekki leyfi til að vera metnaðarfullar. En þær þurfa sömu tækifæri til að láta metnaðinn verða að veruleika. Höfundur er sérfræðingur í ráðningum og meðeigandi hjá Intellecta Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jafnréttismál Mest lesið Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir Skoðun Tilvistarkreppa borðstofunnar Gunnar Salvarsson Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun Skoðun Skoðun Nýsköpun er besta byggðastefnan Lilja Björg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað kemur ESB málinu við? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar Skoðun Flokkur fólksins klippir á bremsur unga fólksins Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Tilvistarkreppa borðstofunnar Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Af hverju ekki hún? Thelma Kristín Kvaran skrifar Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Hvers vegna eru niðurstöður PISA leyndarmál? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um tillögurnar? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Spyrjið okkur hvað við sjáum á TikTok Lena Amirsdóttir Mulamuhic skrifar Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvæg niðurstaða fyrir launafólk Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Vextir og vöxtur nýsköpunar Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir skrifar Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson skrifar Skoðun Náttúruverndargjald: Rétt hugmynd, of þröng útfærsla Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Rétt mönnun í hjúkrun er fjárfesting í öryggi og gæðum Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Bær í vexti - nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun
Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar
Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar
Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar
Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar
Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun