50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Rakel Sveinsdóttir skrifar 18. október 2026 20:02 Það gat hljómað eins og flókið sakamál hér í den þegar við afþökkuðum boð sem okkur langaði ekki í. Loksins 50+ erum við hætt þessum leikaraskap. Ef okkur langar frekar að vera heima og gera ekki neitt segjum við bara: Nei takk. Vísir/Getty Lengst af fullorðinsáranna stóð maður í stöðugum málflutningi fyrir eigin tilveru. Ef einhver bauð manni í boð eða bað mann um greiða - sögðum við ekki einfalt Nei, heldur fylgdi alltaf ítarleg munnleg greinagerð hjá okkur.
Stundum jafnvel þannig að það að afþakka boð sem okkur langaði ekki í gat hljómað eins og flókið sakamál. „Sko, málið er að amma mannsins míns er að passa köttinn hjá frænku sinni sem er með flensu og við erum nýbúin að mála forstofuna svo við eigum engar buxur...“ Allt útskýrt og upptalið í hálfgerðu panikki. Svo enginn héldi að maður væri dóni, erfiður eða – guð forði okkur frá því – ófeiminn við að segja nei. 50+ föttum við síðan oft: Bíddu, ég er ekkert að útskýra mig lengur… Hvað gerðist? Svarið er þetta: Leiksýningunni er lokið Í félagsfræði og sálfræði er talað um hugtakið Impression Management — hið daglega leikhús þar sem við stýrum ímynd okkar og hegðun til að tryggja að öðrum lítist vel á okkur. Þetta er orkukrefjandi fullt starf sem enginn borgar manni fyrir. Þegar maður fer yfir fimmtugt kemur í ljós að leiksýningunni er einfaldlega sjálfhætt. Dæmi:Viltu koma á fimmtudaginn?Svarið okkar: Nei. Af hverju ekki? Svarið okkar: Bara ekki. Í dag finnst okkur ekkert mál að yfirgefa boð snemma og segja einfaldlega: Nei, ég er bara orðin þreytt/ur. Áður hefði útskýringin verið mun lengri og flóknari. Jafnvel setið í okkur sjálfum í nokkra daga á eftir. Okkur er einfaldlega hætt að líða eins og okkur beri einhver skylda til að halda langa varnarræðu. Enda staðreyndin þessi: Ef einhver móðgast við eðlileg mörk þá er það verkefni fyrir þeirra sálfræðing, ekki okkar. Samkvæmt rannsóknum breytist forgangsröðunin okkar eftir því sem við eldumst og þroskumst. Við hættum að sóa tíma í óþarfa skyldurækni og einblínum á innihaldsríka líðan í núinu. Enda frekar léleg fjárfesting að eyða dýrmætri orku í að biðjast afsökunar. Þá sýna rannsóknir að tilfinningalegt sjálfstæði, jafnvægi og getan til að setja mörk ná oft hámarki upp úr fimmtugu. Meðvirknivöðvinn fékk einfaldlega krampa og gafst upp. Eitt það geggjaða við 50+ aldurinn er einmitt þetta frelsi sem felst í því að vera hættur að biðjast afsökunar á því að vera maður sjálfur. „Nei, takk“ er nefnilega ekki bara kurteis setning. Eftir fimmtugt er hún heill lífsstíll.
50+ Tengdar fréttir Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum Það þarf ekki margra ára uppsafnaða gremju til að setja parasamband á hliðina. Í dag geta sakleysisleg skilaboð eða „læk“ á samfélagsmiðlum kallað fram svipað óöryggi, vanlíðan og sársauka og ef maki hefði haldið framhjá. 11. október 2026 08:01 50+: Er ég að verða heyrnarlaus eða eru allir farnir að öskra? Það er loksins komið að því að fara út að borða með góðum vinum. Tilhlökkunin er mikil, búið að panta borð, farða sig og jafnvel strauja skyrtu. Nýr veitingastaður sem þú hefur einmitt heyrt af, séð á Instagram og hlakkar til að prófa. 4. október 2026 20:02 50+: Ertu að verða (eða orðin/n) eins og pabbi þinn eða mamma? Þú situr í heimsókn, horfir út um gluggann, slærð skyndilega báðum lófum fast á lærin á þér, stynur lágt og segir upphátt: „Jæja… ætli maður fari ekki að koma sér.“ 27. september 2026 20:02 50+: Ósjálfráða vinahreinsunin eftir fimmtugt Það eru ótrúlega margir sem tala um þetta og enn fleiri sem upplifa þetta: Einhvers konar vinahreinsun á sér stað um og eftir fimmtugt. Án þess að hér sé haldinn einhver formlegur fundur þar sem ákvarðanir eru teknar eða fólk á í einhvers konar stefnumótun með sjálfu sér. 20. september 2026 20:04 50+: Svefnherbergisskilnaður Er uppskriftin að hamingjusömu hjónabandi mögulega sitt hvort rúmið í sitt hvoru herberginu? 13. september 2026 20:01 Mest lesið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Lífið Vonlaust að gagnrýna vini sína Lífið Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Lífið Skemmtilega söguhornið: Hneykslanlegt að borða með gaffli frekar en puttunum Áskorun Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Lífið Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið 50+: Sjúkdómasamkeppnin í matarboðinu Áskorun Níutíu og einn meistari útskrifaðist Lífið Fleiri fréttir 50+: Sjúkdómasamkeppnin í matarboðinu Skemmtilega söguhornið: Hneykslanlegt að borða með gaffli frekar en puttunum Þetta er undarlegt…: Að hágrenja yfir lauknum Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? 50+: Að hætta að vera þjónustumiðstöð fullorðinna barna Dýra steikin á matseðlinum er ekki þarna til að seljast Þetta er undarlegt…: QWERTY-stafaruglið á símum og lyklaborðum 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, vann fjórfalt, meistaranám og flott starf Eldfimt 50+: Tengdamömmusögur Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum 50+: Er ég að verða heyrnarlaus eða eru allir farnir að öskra? Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Sjá meira
Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum Það þarf ekki margra ára uppsafnaða gremju til að setja parasamband á hliðina. Í dag geta sakleysisleg skilaboð eða „læk“ á samfélagsmiðlum kallað fram svipað óöryggi, vanlíðan og sársauka og ef maki hefði haldið framhjá. 11. október 2026 08:01
50+: Er ég að verða heyrnarlaus eða eru allir farnir að öskra? Það er loksins komið að því að fara út að borða með góðum vinum. Tilhlökkunin er mikil, búið að panta borð, farða sig og jafnvel strauja skyrtu. Nýr veitingastaður sem þú hefur einmitt heyrt af, séð á Instagram og hlakkar til að prófa. 4. október 2026 20:02
50+: Ertu að verða (eða orðin/n) eins og pabbi þinn eða mamma? Þú situr í heimsókn, horfir út um gluggann, slærð skyndilega báðum lófum fast á lærin á þér, stynur lágt og segir upphátt: „Jæja… ætli maður fari ekki að koma sér.“ 27. september 2026 20:02
50+: Ósjálfráða vinahreinsunin eftir fimmtugt Það eru ótrúlega margir sem tala um þetta og enn fleiri sem upplifa þetta: Einhvers konar vinahreinsun á sér stað um og eftir fimmtugt. Án þess að hér sé haldinn einhver formlegur fundur þar sem ákvarðanir eru teknar eða fólk á í einhvers konar stefnumótun með sjálfu sér. 20. september 2026 20:04
50+: Svefnherbergisskilnaður Er uppskriftin að hamingjusömu hjónabandi mögulega sitt hvort rúmið í sitt hvoru herberginu? 13. september 2026 20:01
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið