Körfubolti

Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“

Aron Guðmundsson skrifar
Hér má sjá er Drungilas meiðist. 
Hér má sjá er Drungilas meiðist.  skjáskot: Sýn Sport

Adomis Drungilas, leikmaður Tindastóls, verður frá keppni næstu vikurnar eftir að hafa meiðst á ökkla í leik gegn Njarðvík í fyrstu umferð Bónus deildarinnar á síðasta föstudag.

Frá þessu greinir Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls í samtali við Karfan.is. Búast megi við því að Drungilas verði frá næstu 4-6 vikurnar. 

Það leit ekki vel út í beinni útsendingu þegar að Drungilas sneri illa upp á hægri ökkla sinn við lendingu. Hann var studdur af velli og fór upp á sjúkrahús þar sem að staðan á honum var tekin. 

„Þetta er drullufúlt svo ekki sé meira sagt. En hann mun fara í myndatöku fyrir norðan í vikunni og þá fáum við staðfestingu á því hvað nákvæmlega er að. Það er á hreinu að hann verður ekki með okkur næstu vikurnar,“ sagði Arnar í samtali við Karfan.is

Tindastóll tekur á móti Ármanni í 2. umferð Bónus deildarinnar á fimmtudaginn kemur. Leikur liðanna verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland 5. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×