Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Lovísa Arnardóttir skrifar 10. október 2026 22:01 Bríet Ósk Guðrúnardóttir á nýja kaffihúsinu. Markús eiginmaður hennar sést í bakgrunni bak við afgreiðsluborðið. Vísir/Anton Brink Hjónin Markús Hauksson og Bríet Guðrúnardóttir opnuðu nýlega kaffihúsið Róst að Suðurlandsbraut 8 þar sem Te og kaffi var áður til húsa. Þau tóku við rekstri kaffihússins Kaffi Laugalækjar fyrir rúmu ári síðan og segja að töluverð samlegðaráhrif verði með kaffihúsunum þó það séu ólíkar áherslur. „
Það sem staðirnir eiga sameiginlegt er fyrst og fremst metnaður okkar fyrir góðri þjónustu, notalegu umhverfi og því að skapa staði þar sem fólki líður vel,“ segir Bríet og að þó svo að það verði einhver samlegðaráhrif séu staðirnir tveir alltaf mjög ólíkir. Sem dæmi verði hægt að fá mat á Róst sem búinn er til á Kaffi Laugalæk. „Kaffi Laugalækur er meira hefðbundið hverfiskaffihús og veitingastaður, á meðan Róst leggur mun meiri áherslu á kaffimenningu, vandað kaffi og matchadrykki. Við höfum mikinn áhuga á að gera eitthvað skemmtilegt í kringum kaffið og ætlum meðal annars að bjóða reglulega upp á kaffi frá gestabrennslum, bæði íslenskum og erlendum. Þannig getum við kynnt viðskiptavini fyrir ólíkum kaffitegundum og kaffibrennslum og haft úrvalið síbreytilegt. Við ætlum einnig að vera með okkar eigið kaffi til sölu.“ Bríet segir hönnun og umhverfi líka skipta þau miklu máli og að á Róst hafi þau fengið tækifæri til að skapa alveg nýjan stað frá grunni og hún getað nýtt bakgrunn sinn í innanhússhönnun vel. „Þótt staðirnir verði ólíkir er hugsunin á bak við þá sú sama, að bjóða upp á góða upplifun, vandaðar vörur og hlýlegt andrúmsloft sem fær fólk til að koma aftur.“ Bríet segir að þó svo að það geti verið krefjandi að vera hjón saman í rekstri sé það líka ótrúlega skemmtilegt. Þau séu með ólíkan bakgrunn, hún í innanhússhönnun og Markús sem bakari, sem nýtist þeim vel saman. View this post on Instagram A post shared by RÓST | KAFFISTOFA (@rostkaffi) Áskorun að búa og vinna með sama einstaklingum „Markús er bakari að mennt og hefur mikla reynslu úr veitingageiranum, þannig að hans styrkleikar liggja fyrst og fremst í þeim hluta rekstrarins. Ég hef hins vegar starfað sem innanhússhönnuður undanfarin ár og er í raun nýkomin af fullum krafti inn í veitingareksturinn. Það skemmtilega við þetta allt saman er að nú fæ ég tækifæri til að sameina þetta tvennt, hönnunina og reksturinn. Við höfum því hvort okkar sérsvið en vinnum mjög vel saman og deilum sömu sýn á það sem við viljum skapa. Það er líka ákveðinn kostur að þekkja samstarfsfélaga sinn svona vel,“ segir hún kímin og bætir við: „En svo er auðvitað stærsta áskorunin að reyna að skilja vinnuna eftir í vinnunni, því það er hægara sagt en gert þegar maður bæði býr og vinnur með sama einstaklingnum“ Hægt verður að fá súpu, samloku og vefjur á kaffihúsinu. Róst Bríet segir að það hafi gengið afar vel á Kaffi Laugalæk frá því að þau tóku við. „Kaffi Laugalækur er staður sem á sér sína sögu og hefur lengi verið hluti af hverfinu, svo okkur fannst mikilvægt að halda í þá stemningu sem fólk þekkir og þykir vænt um, en um leið setja okkar mark á staðinn. Við höfum verið að þróa staðinn áfram og prófa ýmsar nýjungar. Meðal annars byrjuðum við með brunch um helgar sem hefur slegið alveg í gegn og er orðinn mjög vinsæll.“ Hún segir þau Markús hafa lært mjög mikið á þessum stutta tíma í rekstri og það sé alltaf mjög ánægjulegt að sjá hversu margir fastagestir kaffihússins komi aftur og aftur. „Það er einmitt það sem okkur þykir svo vænt um við þennan rekstur, tengslin við fólkið og samfélagið í kringum okkur. Svo megum við alls ekki gleyma starfsfólkinu okkar, sem er alveg einstakt. Við erum ótrúlega heppin með þann hóp sem vinnur með okkur og það er svo sannarlega ekki sjálfgefið. Það er mikil samheldni í hópnum og við erum með frábært fólk sem leggur sig fram á hverjum degi,“ segir hún og þau eigi stóran þátt í því að hún og Markús treysti sér til að taka sitt næsta skref með Róst. Sjá tækifæri frekar en takmarkanir Greint var frá því í júlí að loka ætti kaffihúsinu Te og kaffi í sama húsnæði. Guðmundur Halldórsson, framkvæmdastjóri Te og kaffi, sagði reksturinn aldrei hafa náð þeim hæðum sem þau hafi viljað og því hafi þau ákveðið að fara þegar leigusamningur rann út. Bríet segist ekki hafa áhyggjur af þessu. „Við horfum fyrst og fremst á tækifærin sem felast í þessari staðsetningu. Suðurlandsbrautin er mjög áhugavert svæði, með fjölbreytta starfsemi, mikið af vinnustöðum og íbúabyggð í næsta nágrenni. Við höfum mikla trú á því að það sé pláss fyrir notalegt kaffihús á þessu svæði. Við erum auðvitað með okkar eigin hugmyndir um hvernig við viljum reka staðinn og hvaða upplifun við viljum skapa. Við vitum að það tekur tíma að byggja upp góðan rekstur og fastan kúnnahóp, en við erum mjög spennt fyrir þessu verkefni.“ Einnig hefur töluvert verið talað um breytingar á Suðurlandsbraut. Breytingar á götunni voru auglýstar í mars og í þeim var til dæmis gert ráð fyrir að akreinum yrði fækkað svo að Borgarlína kæmist fyrir. Þá var gert ráð fyrir að breytingarnar gætu haft áhrif á fjölda bílastæða við götuna. Breytingarnar voru til umræðu í kosningum sem fóru fram í vor og var þeim svo formlega hafnað á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í júní. Bríet segir þau auðvitað fylgjast með þessu og þau geri sér grein fyrir því að framkvæmdir geti haft áhrif á aðgengi og umferð um svæðið. „En við reynum að horfa á þetta til lengri tíma. Við teljum að svæðið eigi mikla möguleika og vonum að breytingarnar verði til þess að gera það enn skemmtilegra og aðgengilegra fyrir fólk. Okkar markmið er að skapa stað sem fólk vill heimsækja, hvort sem það vinnur í nágrenninu, býr á svæðinu eða gerir sér sérstaka ferð til okkar.“
Veitingastaðir Reykjavík Skipulagsmál Mest lesið Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Viðskipti erlent Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira